Ríkar þjóðir hjálpa þeim efnaminni 11. mars 2009 04:15 Robert B. Zoellick forstjóri Alþjóðabankans hefur viðrað hugmyndir um stofnun sjóðs handa fátækustu ríkjum heims sem þær ríkustu leggi í. Innlegg þjóðanna er lítið brot af þeim björgunarpökkum sem þær samþykkja til bjargar eigin skinni. Mynd/AP
Stjórn Alþjóðabankans greindi frá því á sunnudag að útlit sé fyrir að hagvöxtur muni dragast saman á árinu og muni milliríkjaviðskipti fylgja með niður í svelginn. Bankinn gefur spána út fyrir fund fjármálaráðherra tuttugu umsvifamestu iðnríkja heims, sem haldinn verður í Lundúnum í Bretlandi um næstu helgi. Bandaríska dagblaðið New York Times, sem segir þetta dekkstu hagspá sem sést hafi það sem af er ári, hefur eftir hagfræðingum bankans að þessir tveir þættir hafi ekki fylgst að síðan á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. Síðan þá eru liðin rúm sextíu ár. Alþjóðabankinn dregur upp afar dökka mynd af horfum heimshagkerfisins, segir að áhrifanna muni gæta langt út fyrir það sem áður var talið. Talið er til að undirmálskreppan, sem hófst fyrir tveimur árum með vanskilum bandarískra fasteignalántakenda, hafi undið svo upp á sig að nú bíti hún af krafti í þá sem síst skyldi, fátækustu þjóðir heims í Suður-Ameríku, Afríku og í SA-Asíu. Þá kemur fram að ekki megi útiloka að alþjóðlegar lánastofnanir á borð við Alþjóðabankann og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn muni ekki hafa burði til að koma öllum þeim til hjálpar sem leiti ásjár þeirra. Blaðið segir Robert B. Zoellick, forstjóra Alþjóðabankans, hafa mælst til þess að ríkustu þjóðir heims taki höndum saman til hjálpar þeim sem minna megi sín og mæli hann með því að ríkustu þjóðir heims sammælist um stofnun bjargráðasjóðs til handa þeim fátækari, sem þau geti sótt í til stuðnings fyrirtækjum í nauðum. Verði draumar Zoellicks að veruleika munu ríkustu lönd heims leggja ákveðna upphæð í sérstakan sjóð, um 0,7 prósent, af þeirra eigin björgunarpakka. Líkur eru á að nokkur lönd í Mið- og Austur-Evrópu, svo sem Pólland, Ungverjaland og Tékkland, geti sótt sér fé í sjóðinn. Þessi lönd hafa orðið fyrir verulegum skakkaföllum vegna samdráttar í útflutningi til Vestur-Evrópu samhliða því að aðgangur landanna að fjármagni hefur lokast.
Undir smásjánni Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira