Afsakið meðan ég æli Kolbeinn Ó. Proppé skrifar 26. ágúst 2009 06:00 Ákafamenn um afsökunarbeiðnir fara mikinn þessi dægrin. Varla er tekið það viðtal að viðmælandinn sé ekki krafinn um hvort hann telji sig skulda afsökunarbeiðni, eða hvort hann telji að einhverjir aðrir skuldi nú ekki slíkar beiðnir - og þá hverjir og hverjum. Fjármálaráðherra segir útrásar-víkinga eiga að biðjast afsökunar og nefnir Hreiðar Má. Sá telur sig ekki eiga að biðja þjóðina afsökunar og Hannes Hólmsteinn segir Steingrím eiga að biðjast afsökunar. Ögmundur telur síðan Hannes sjálfan eiga að biðjast afsökunar. Haldi einhver að þetta sé atburðarás leikverks eftir Ionesco er það mikill misskilningur. Þetta eru fréttir og fréttatímar allra síðustu daga. Ein afsökunarkrafa á fréttatíma er viðmiðið; annars er lítið í fréttum þann daginn. Ég veit það ekki. Einhvern veginn er mér alveg sama um hver biður hvern afsökunar. Það mun engu breyta í minni stöðu hvort kapítalistar þessa lands koma í röðum og biðja mig og aðra afsökunar. Þeir geta gengið sig upp að hnjám í aflátsgöngum, þrammað til Rómar og til baka daglega, keypt sér aflátsbréf eða brennt reykelsi til minningar um framin afbrot. Það mun engu breyta. Því hvað á að breytast við þessar framkölluðu afsökunarbeiðnir? Mun lífið verða léttbærara, reikningarnir lægri, vinnan meiri? Yrðu þær til að friða almenning eða afsökuðina sjálfa? Og hver á að ákveða hvaða afsökunarbeiðna er þörf? Eigum við að búa til lista yfir þá fjármála-, embættis- og stjórnmálamenn, ásamt öllum hinum, sem okkur finnst að skuldi okkur afsökunarbeiðni? Eigum við kannski sjálf að biðjast afsökunar? Fara öll út í Viðey og kyrja við friðarsúluna þar til Ringo Starr stoppar okkur? Er ekki komið nóg af þessu? Væri fjölmiðlamönnum þessa lands ekki hollara að eyða orku sinni og útsendingartíma í eitthvað annað en að fá það á hreint hverjum finnst hverjir skulda hverjum afsökunarbeiðni? Finni einhver sig knúinn af innri þörf til að biðjast afsökunar, þá gott og vel. best að taka af ómakið hvað mig varðar: það þarf enginn að biðja mig afsökunar. Hefji einhver þann söng mun ég taka undir með Megasi: Afsakið meðan ég æli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson Skoðun Stríðandi viðhorf Sjálfstæðismanna til tjáningarfrelsis Ágúst Elí Ásgeirsson Skoðun Málfrelsi, meiðyrði og mútugreiðslur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Offramboð af raforku, ekki orkuskortur Guðmundur Hörður Guðmundsson Skoðun Klíkur, kunningsskapur og brostið traust á Nesinu Páll Kári Pálsson Skoðun Gestalisti elítunnar Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Baðlónabullið - stjórnvöld hlaupast undan ábyrgð Pétur Óskarsson Skoðun Á Landskjörstjórn að gera athugasemdir við spurninguna? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hér er fúsk, um fúsk, frá fúski til fúsks Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Traust fæst ekki með orðum einum saman – Verkalýðsfélög eru fyrirmyndir Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun
Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson Skoðun
Traust fæst ekki með orðum einum saman – Verkalýðsfélög eru fyrirmyndir Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun
Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson Skoðun
Traust fæst ekki með orðum einum saman – Verkalýðsfélög eru fyrirmyndir Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun