Til varnar tímanum Eva Harðardóttir og Katrín Ólína Pétursdóttir skrifa 3. nóvember 2026 17:33 Við sem skrifum komum úr ólíkum greinum háskólamenntunar; hönnun við Listaháskóla Íslands og menntavísindum við Háskóla Íslands. Við deilum hins vegar þeirri kennslufræðilegu sýn að raunverulegt virði menntunar sé að finna í þáttum sem velta að verulegu leyti á stað og stund – tíma og rými. Rými sem þarf stöðugt að rýna í, rækta og deila með öðrum og tíma sem byggir á tengslum og teygist á þegar verkefnin öðlast merkingu. En er íslenskt samfélag meðvitað um þessa mikilvægu þætti náms og kennslu og geta íslenskir háskólanemendur raunverulega helgað sig slíku námi? Ábyrgð nemenda Háskólanemendur hér á landi eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir og væntingar til náms. Samtímis búa þeir við nokkuð einstakar aðstæður sem hafa áhrif á það með hvað hætti þau geta ráðstafað tíma sínum. Sem dæmi vinna íslenskir stúdentar mun meira en norrænir jafningjar þeirra en niðurstöður nýjustu EUROSTUDENT rannsóknarinnar sýndu að tæplega 80% íslenskra háskólanemenda vinna samhliða námi. Þá eiga rúmlega 30% íslenskir stúdentar börn á meðan á námi stendur sem er hæsta hlutfall nemenda í Evrópu. Fjölmargir nemendur okkar þurfa því að samræma nám, umtalsverða vinnu og fjölskylduábyrgð. Slíkt vekur upp spurningar um möguleika þeirra til að helga sig námi sem kallar á viðveru og endurtekna ígrundun. Þegar vel tekst til í menntavísindum þjálfast nemendur í að rýna í þekkingu, hugmyndir og viðteknar venjur sem móta menntun og skólastarf. Þeir skoða nám og kennslu í sögulegu, menningarlegu og samfélagslegu samhengi og velta fyrir sér hvernig stétt, staða og vald hafa áhrif á möguleika fólks til menntunar. Hægt og rólega læra nemendur að sjá ekki aðeins það sem blasir við, heldur líka það sem fær lítið rými eða vantar alveg í umræðu um menntamál. Með sama hætti læra nemendur í hönnunarmenntun að lesa hluti og myndmál, greina hlutföll, samsetningu, rýmiskennd og samband hluta við tómið í rými, hvort sem unnið er í tvívídd eða þrívídd. Með tímanum þjálfast þeir í að sjá hvað gengur upp og hvað ekki. Að sjá og greina, hugsa og endurhugsa. Báðar upplifum við að þrátt fyrir krefjandi aðstæður sækjast nemendur í auknum mæli eftir því að fá að stunda nám þar sem áhersla er lögð á samveru og samskipti. Tengsl við náttúru, efni og verklega færni. Nám þar sem þekking verður ekki til í flýti heldur þróast á grunni tilfinninga, í nálægð og snertingu, með endurtekningum og tilraunum sem geta bæði heppnast og misheppnast. Slík hugsun á sér sterka samsvörun í menntun til sjálfbærrar þróunar, þar sem þekking og gagnrýnin hugsun helst í hendur við reynslu, sköpun, umhyggju og ábyrgð gagnvart öðrum og umhverfinu. Ábyrgð kennara Tilkoma gervigreindar vekur upp spurningar um hlutverk og stöðu kennarans. Einhver gætu hugsað sér að hlutverk hans minnki eða verði jafnvel óþarft með öllu. Við erum hins vegar á þeirri skoðun að hlutverk kennarans, sem vitanlega tekur sífelldum breytingum, sé nú enn mikilvægara en áður. Sem dæmi má gera ráð fyrir að kennarar þurfi í minna mæli að vísa nemendum á hvar upplýsingar sé að finna. Á hinn bóginn verður æ mikilvægara að leiðbeina þeim við að leggja gagnrýnið mat á það sem fyrir liggur, sjá samhengi hlutanna og mynda tengsl milli ólíkra hugmynda, aðferða og fræðasviða. Slík hæfni er ekki síst mikilvæg í ljósi þeirra flóknu hnattrænu áskorana sem við stöndum frammi fyrir og verða ekki leystar innan marka einnar fræðigreinar. Heimspekingurinn Hannah Arendt benti fyrir margt löngu á að menntun feli í sér sérstaka ábyrgð á heiminum og unga fólkinu sem tæki við honum. Hún taldi að kennarar bæru ábyrgð á að kynna nemendum heiminn, eins og hann er, með allri sinni sögu, margbreytileika og mótsögnum, en einnig að tryggja að ný kynslóð hefði forsendur til að breyta honum. Þannig hefur menntun mögulega alltaf falið í sér tvöfalt hlutverk: að miðla því sem við höfum fengið í arf en jafnframt að skapa rými fyrir ný og óvænt sjónarhorn. Sú persónulega leiðsögn sem nemendur njóta í hönnunarmenntun, þar sem nemendur vinna að eigin sköpun í samtali við kennara sem hafa reynslu af rannsóknum og tilraunum, á við um fleiri ef ekki flest fræðasvið. Kennarar þekkja sögu, aðferðir og möguleika fagsins og geta þannig hjálpað nemendum að sjá tengsl sem liggja ekki í augum uppi. Nemandi sem rannsakar hlut eða menningarlegt fyrirbæri úr fortíðinni getur til dæmis, með leiðsögn kennara, kannað hvaða erindi það á við samtímann og hvernig megi þróa nýjar hugmyndir út frá því með öðrum efnum, aðferðum og tækni. Þannig verður rannsóknin að samtali milli fortíðar og samtíðar, þar sem ný sköpun verður til og hið eldra öðlast nýja merkingu. Slík kennslufræði, þar sem hugur, hönd og hjarta fara saman, krefst bæði tíma og rýmis. Kennarar þurfa svigrúm til að rannsaka, ígrunda og tengja saman þekkingu, kennslu og samfélagsleg viðfangsefni ef þeir eiga að geta leitt nemendur út fyrir hið kunnuglega og opnað þeim ný sjónarhorn. Við þekkjum sjálfar hvernig tími kennara fer í auknum mæli í að mæta fjölbreyttum þörfum og aðstæðum nemenda svo sem að þróa námsmat og kennsluaðferðir sem styðja við inngildingu og tækifæri til náms. Þessum verkefnum tökum við fagnandi. Samhliða eykst hins vegar einnig áherslan á skilvirkni, tæknilega umsýslu og mælanlegan árangur. Því er viðbúið að sá tími sem tækninni er ætlað að spara fyllist jafnharðan af tæknilegum úrlausnarefnum og auknum kröfum um afköst. Í þessari togstreitu er hætt við að það sem skiptir mestu máli í menntun verði út undan, tíminn til að hugsa, skapa tengsl, prófa nýjar leiðir og uppgötva eitthvað sem enginn sá fyrir. Ábyrgð háskóla og stjórnvalda Við sem lifum og hrærumst á vettvangi háskólanna stöndum frammi fyrir áhugaverðri þversögn. Á sama tíma og möguleikar okkar til að afla upplýsinga aukast, þrengir stöðugt að því svigrúmi sem við höfum til að menntast á merkingarbæran hátt. Ábyrgðin er ekki eingöngu þeirra sem nema og kenna. Stjórnvöld þurfa að tryggja íslenskum háskólum fjármögnun sem stenst samanburð við nágrannalöndin og háskólarnir sjálfir þurfa að hafa hugrekki til að skipuleggja nám og kennslu þannig að samvera, rannsóknir, gagnrýnin ígrundun og sköpun fái raunverulegt rými. Að verja tíma til náms felur ekki í sér að hafna tækniframförum eða nýjum leiðum í kennslu. Þvert á móti snýst það um að nýta þá möguleika sem tæknin skapar án þess að glata því sem hún getur ekki komið í staðinn fyrir: nærveru, dómgreind, sameiginlegri reynslu sem gerir okkur kleift að sjá heiminn í nýju ljósi. Að standa vörð um tíma og rými í háskólum er því ekki afturhvarf til fortíðar, heldur meðvituð afstaða til framtíðar. Eva Harðardóttir er lektor við Deild menntunar og margbreytileika Háskóla Íslands. Katrín Ólína Pétursdóttir er forseti Hönnunardeildar Listaháskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar