Skoðun

Ég hata þessa mann­eskju út af lífinu!

Hermann Stefánsson skrifar

Í fyrsta lagi: Skilvirkasta leiðin til að koma í veg fyrir að fólk velji að hugsa sjálfstætt er að gefa sjálfstæðri hugsun gáfulega áru. Sjálfstæð hugsun kemur gáfum og greindarvísitölu ekkert við. Hún er val. Fólk velur að hugsa sjálfstætt og fylgja engum fjölda og engum hópi og engri mergð. Það þarf engar gáfur til, ekki góða námsmenn, ekki einu sinni fólk sem hegðar sér sérlega skynsamlega í lífinu. Ljóngáfað fólk hefur í aldanna rás ítrekað valið að hugsa ekki sjálfstætt heldur fylgja hjörð. Hugrekkið hefur brostið, óttinn við persónulegar óvinsældir farið með sigur af hólmi.

Í öðru lagi: Engin sérstök öfl sem hægt er að festa fingur á þarf til þess að koma því í kring að sjálfstæð hugsun sé óvinsæl. Tíðarandinn nægir. Fátt breytist eins hratt og tíðarandi. Hegelsk díalektík er tiltölulega einfalt skýringarlíkan um rás sögunnar: Fyrst kemur tesa — kenning. Síðan kemur antítesa — öndverð kennnig. Að lokum kemur syntesa — samruni tveggja andstæðra póla, sem svo breytist í tesu.

Á hvaða tíma lifum við núna? Tíma syntesunnar þar sem allir fallast í faðma og verða sammála um nýjan sanneik? Tæplega.

Ekkert er ekki álitið hafa neitt innihald nema það sé afgerandi og skorinort. Á þennan veginn eða hinn veginn. Sé það á hvorugan veginn er það merkingarlaust og hrapar niður í gjánna milli tveggja póla.

Er það annars orðin ein af klisjunum að tala gegn pólaríseringu? Það getur verið. Það væri vert að skoða frumgögnin.

Mælskulist Aristótelesar

Einn af stimplunum um þau okkar sem velja að hugsa sjálfstætt er hugsanlega að við séum með hvítu styttuna af Beethoven á píanóinu okkar. Við erum svo djöfull snobbuð. Nú er það að vísu alveg rétt að ég er með hvíta styttu af Beethoven á píanóinu mínu. Hvað með það?

Merkir það að það sé rangt að skoða það sem gjarnan er álitið vera grundvöllur vestrænnar siðmenningar?

Þeir sem mjög lítið þekkja til halda að vagga lýðræðisins sé í grófum dráttum í Grikklandi til forna. Það er að vísu rétt um margt en hitt er rangt að forn-grískir gáfumenn hafi að sönnu lagt grunninn að lýðræðinu.

Staðreyndin er sú að þeir fundu margir hverjir lýðræði alla jafna allt til foráttu.

Maður þarf ekki að vera heimspekingur og þarf ekki að vera menntaður í fornfræði, það nægir að hafa gruflað svolítið í Lærdómsritum Hins íslenska bókmenntafélags og gerst forvitinn og lesið heimspeki á netinu, á vefsíðu með bókum sem löngu eru runnar úr höfundarétti. Svo sem Mælskulist Aristótelesar (eða: Retórík).

Gegn lýðræði: Þjóðarkosningar um lækna?

Aristóteles var hlutlægari og varfærnari en Platón. Hvað var hægt að hafa á móti lýðræði í vöggu sinni? Meðal annars að lýðræði leiði alltaf til alræðis. Það sé óstöðugt kerfi og fallvalt og gjarnan forsmekkurinn að einhverju öðru. Og í raun er það ekki sérlega skynsamlegt kerfi. Ekki á öllum sviðum.

Eru heilsugæslulæknar kosnir til starfa? Onei. Það færi ekki vel ef sigurvegari almennra læknakosninga yrði læknir, án nokkurrar þekkingar á læknisfræði. Eru burðarþolsverkfræðingar kosnir til starfa og geta fengið starfið út á kjörþokka? Það er hætt við að margar byggingar hefðu hrunið til grunna ef svo væri. Er ekki saga Platóns um fáráðlingafleytuna alveg hreint dæmalaus? Hver vinnur líklegast kosningar til að verða skipstjóri á slíkri fleytu ef ekki sá óhæfasti, sannfærðasti, öruggasti, sá sem lofar flestu, stendur við ekkert, hefur enga þekkingu en miklar vinsældir? Sléttur sjór, góður byr, örugg sigling undir styrkri stjórn minni, segir fáráðlingurinn til að fá djobbið. Hvaða sjens á sá sem þekkinguna hefur og viðrar í sífellu efasemdir því hann veit sem er, að siglingafræði er flókið mál? Engan sjens, sennilega. Fólk kýs þann sem lofar öllu fögru og stendur ekki við neitt af því.

Nú hatast að vísu margir við Platón en hann er ekki manneskjan sem ég hata af öllu hjarta.

Aristóteles er hlutlægari og foraktar ekki frambjóðandann eða mælskulistina í heild sinni.

Blábyrjunin: Fyrsti kafli

Nú er ég, sjálfmenntaður gruflari í heimspeki, svo sem sennilega ekki rétti maðurinn til annars en að mæla með því að fólk horfi á myndbönd á youtube þar sem gerðar eru tilraunir til að skilja samtímann út frá riti Aristótelesar um mælskulist.

Lykilorð er sögnin að sannfæra. Eða kannski væri betra orð: Fortölur. Aristóteles fordæmir ekki beinlínis mælskulistina sem skrum heldur sér í henni fegurðina og nytsemdina.

Eitt einkenni á mælskulistinni er að rökliðum er sleppt, eða litið á þær sem gefnar forsendur sem þurfi ekki að nefna. Þannig er strax í upphafi rits Aristótelesar tekið dæmi þar sem rökfærslan er ekki: A leiðir til B og þess vegna er niðurstaðan óhjákvæmilega C. Aðeins er sagt A, B er sleppt og niðurstaðan er samt C. Hvernig getur niðurstaðan verið C ef forsendan er aðeins A? Um það skal ekkert sagt. Það nægir að hafa vakandi auga með því hvort þannig rökleiðslur eru notaðar í samtímanum og velta vöngum yfir því hvaða B það er sem er sleppt, vegna þess að það er álitið augljóst. Hugsanlega er sú rökfærsla ekki raunverulegur þanki heldur áróður. Við sannfærumst um eitthvað þegar við álítum að sýnt hafi verið fram á það. Auðveldasta leiðin til að sýna fram á eitthvað er það sem nefnist „samþjöppuð röksemdafærsla“ eða „skert samleiðsla“ (e. enthymeme). Það er ekki fullkomin þríliða heldur tvíliða með einum lið undanskildum.

Dæmi? B og C: „Sókrates er dauðlegur af því að hann er manneskja.“ Í daglegu tali er fljótlegra að sleppa yfirforsendunni A: „Allar manneskjur eru dauðlegar.“ Það er jafn rétt þótt A sé sleppt.

Hvað með manneskjuna sem ég hata? Hún er dauðleg eins og aðrir. Fer ekki að koma að henni svo það verði eitthvert fútt í þessu skrifi?

Sjáum til með það.

Mælskulist Aristótelesar hefur ekki verið þýdd á íslensku og reyndar ekki heldur rit hans Stjórnmál né rit hans De Natura animalium. Þó er fróðlegt að lesa þau bæði. Ríkjandi flokkunarkerfi dýra er ekki sjálfgefið. Einhver önnur hugsunarleið getur verið fullt eins góð til að flokka dýr. Þannig geta hvalir alveg eins flokkast til sjávardýra og spendýra, það fer eftir því við hvað er miðað, að hvalir búa í sjó eða að hvalir hafa spena. Stjórnmál eftir Aristóteles er sjálfsagt á undan á lista Hins íslenska bókmenntafélags um hvað megi koma út næst af grundvallarritum. Það held ég að sé rétt forgangsröðun. En Mælskulistin ætti ekki að koma út miklu síðar.

Skiptumst á skoðunum

Það getur verið þess vert að skiptast á skoðunum.

Ég fæ þína skoðun og þú færð mína.

Bara til að máta.

Það er aldrei hægt að máta sig við of margar skoðanir.

Hvers vegna eru flestir svona fljótir að hrapa að þeirri ályktun að þeir hefðu ekki verið nasistar í Þýskalandi nasismans? Hefur fólk klætt sig í nasistafrakka og litið í spegil?

Segjum að maður hafi verið í senn hámenntaður og unnið í verksmiðju, ekki gyðingur og ekki samkynhneigður, ekki tilheyrt neinum af þeim hópum sem nasistar herjuðu á. Ekki verið geðveikt barn sem sent var í eitt af hinum þrjátíu Kinderfachabteilungen og átti ekki afturkvæmt lifandi. Segjum að maður hafi varla veitt því athygli hvernig komið var.

Segjum. Segjum. Mátum viðhorf.

Þar myndi Aristóteles kannski vera ósammála um rökleiðslur mælskulistarinnar og væri nær að líta í skrif frá nítjándu öld og byrjun þeirrar tuttugustu um hópsálarfræði. Eftir myndi þó standa kjarninn í athugunum þess gríska á mælskulist: Það er ekki hægt að sannfæra heilu þjóðirnar um neitt með flóknum röksemdafærslum. Mælskulistin sleppir aukaatriðum og gerir þau að sjálfsögðum grundvelli allra samræðna. Mælskulistin er systir samræðulistarinnar. Hún gerir samræðuna skiljanlegri, meira lifandi og aðgengilegri. Kannski má týna til rökvillur en það getur verið næsta fánýt iðja.

Kjarni máls er að mælskulist æfir þann sem hana stundar í að sjá margar hliðar á hverju máli. Hún auðveldar okkur að setja okkur í spor náungans. Hún hjálpar okkur að eyða þversögnum og draga úr tvískautun í huga okkar og finna skynsemina.

„Skynsemin er hlý“, orti Dagur Sigurðarsson til höfuðs þeirri klisju að skynsemin væri köld.

Líklega var það óheppilegt að nefna nasismann hér aðeins ofar. Hann er nær í tíma en önnur fólskuverk sögunnar, engu skárri en á öðrum stað, og fjarlægðin sem er komin á hann er rétt nægileg til að nota hann í þrætubækur en ekki nógu lítil til þess að við viljum læra af honum.

Stríðið hefur fjarlægst nægilega til þess að búa í haginn fyrir nýja heimstyrjöld.

Mikið hata ég manneskjuna sem ég hef ekki enn sagt hver er og hvað veldur hatri mínu á henni.

Og hvað með manneskjuna?

Fyrirsögn þessa skrifs er smellubeita, annað ekki.

Í alvöru. Ekkert annað. Ég meina það.

Sjálfsagt gæti reynst torvelt að verja þessa mælskufræðilegu smellubeitu fyrir þeim sem fyrirfram eru sannfærðir um að einhver manneskja sem ég hati tengist samt efni máls míns á einhvern óræðan máta. Það verða til oftúlkendur sem halda að kafbátatenging sé við slíka manneskju. Ég get ekkert að því gert. Tengingin er engin. Margur heldur mig sig.

Og sér grefur gröf sem grefur.

Þar sem smellubeitur tengjast mælskulistinni er að það vantar í hana lykilatriði. Í raun er þetta ekki smellubeita í þeim skilningi að sleppt sé úr því sem allir/öll eiga að vera sammála um og vita fyrir víst. Það er þvert á móti bætt við óþörfum lið sem hvergi tengist umfjöllun um efnið til þess eins að vekja forvitni. Vekja falskar væntingar.

Ef manneskjan sem ég ekki hata því hún er ekki til hefur ekki lesið Mælskulist Aristótelesar er hún kannski móttækileg fyrir því riti.

Hatursmanneskjan brýtur regluna um skýrleika máls, því hún er viljandi sett í fyrirsögn skrifs án þess að tengjast neinum kjarna þess. Höfðað er til geðshræringar, eða „paþos“, sem getur jafnt verið reiði eða hrifning. Algengari smellubeita myndi sleppa fremur en að bæta við og segja til dæmis: „Það sem þú veist ekki um lauk“. Ég myndi sjálfur sennilega falla fyrir því bragði því ég veit að ég veit ekki allt um lauk. Smellubeitan hefði getað höfðað til vandlætingar og um leið forvitni og verið til dæmis: „Maðurinn sem þú vissir ekki að væri nasisti“. Ef því væri svo fylgt eftir og einhver kallaður nasisti í textanum hefði það sjokkáhrif. Ekki sjokk yfir manneskjunni heldur vegna mín ef ég kallaði hana nasista, sem væri ekki kurteist. En það væri ekki sannleiksleit, bara mælskulist.

Eru það stælar og tilgerðarlegar tiktúrur að setja svo falska fyrirsögn á texta? Það er ekki útilokað. En tilgangurinn getur réttlætt meðalið. Það er þess virði að kynna sér Mælskufræði Aristótelesar og verða af því örlítið vitrari.

Ég hata enga manneskju.

Höfundur er rithöfundur. 




Skoðun

Sjá meira


×