Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 22:33 Dagana 2.–8. nóvember fer fram árleg evrópsk vitundarvakning um ófrjósemi. Í ár er sjónum beint að því hvernig ófrjósemi fylgir fólki inn á vinnustaðinn og hvernig atvinnurekendur geta veitt stuðning. Frjósemisvandi verður ekki eftir heima þegar fólk mætir til vinnu. Frjósemisvandi snertir marga og reikna má með að einn af hverjum sex starfsmönnum á barneignaraldri glími við slíkan vanda. Þótt umræðan hafi orðið opnari á síðustu árum veigra margir sér enn við að ræða eigin reynslu, meðal annars við yfirmenn og samstarfsfólk. Frjósemisvandi og meðferðir við honum geta haft mikil andleg, líkamleg og fjárhagsleg áhrif. Ferlið getur verið langvarandi og einkennst af óvissu, kvíða og vonbrigðum. Hormónameðferðir og önnur inngrip geta aukið álagið, auk þess sem kostnaður getur verið verulegur. Að sinna vinnu samhliða þessu getur því verið krefjandi. Enginn velur sér þessa vegferð. Þess vegna skiptir miklu máli að fólk finni fyrir skilningi og stuðningi í umhverfi sínu. Þar gegna atvinnurekendur og samstarfsfólk mikilvægu hlutverki. Við í Tilveru, samtökum um ófrjósemi, hvetjum atvinnurekendur til að viðurkenna að frjósemisvandi og meðferðir við honum séu raunverulegt viðfangsefni á vinnustöðum. Stuðningur getur meðal annars falist í því að tryggja starfsfólki fjarveru vegna meðferða án skerðingar á orlofi eða launum, bjóða sveigjanlegt vinnufyrirkomulag þar sem því verður við komið og standa vörð um friðhelgi einkalífs. Fólk þarf að geta óskað eftir stuðningi án þess að þurfa að deila viðkvæmum upplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er. Þótt réttur til fjarveru vegna tæknifrjóvgunarmeðferða sé þegar tryggður í sumum kjarasamningum heyrum við hjá Tilveru því miður enn frásagnir af fólki sem fær ekki nægan stuðning eða sveigjanleika á vinnustað meðan á meðferð stendur. Við viljum að þessum frásögnum fækki og að stuðningur við fólk með frjósemisvanda verði sjálfsagður hluti af vinnustaðamenningu. Með skilningi, sveigjanleika og virðingu geta vinnustaðir létt undir með fólki á krefjandi tímum. Höfundur er stjórnarmaður í Tilveru, samtökum um ófrjósemi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frjósemi Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Sjá meira
Dagana 2.–8. nóvember fer fram árleg evrópsk vitundarvakning um ófrjósemi. Í ár er sjónum beint að því hvernig ófrjósemi fylgir fólki inn á vinnustaðinn og hvernig atvinnurekendur geta veitt stuðning. Frjósemisvandi verður ekki eftir heima þegar fólk mætir til vinnu. Frjósemisvandi snertir marga og reikna má með að einn af hverjum sex starfsmönnum á barneignaraldri glími við slíkan vanda. Þótt umræðan hafi orðið opnari á síðustu árum veigra margir sér enn við að ræða eigin reynslu, meðal annars við yfirmenn og samstarfsfólk. Frjósemisvandi og meðferðir við honum geta haft mikil andleg, líkamleg og fjárhagsleg áhrif. Ferlið getur verið langvarandi og einkennst af óvissu, kvíða og vonbrigðum. Hormónameðferðir og önnur inngrip geta aukið álagið, auk þess sem kostnaður getur verið verulegur. Að sinna vinnu samhliða þessu getur því verið krefjandi. Enginn velur sér þessa vegferð. Þess vegna skiptir miklu máli að fólk finni fyrir skilningi og stuðningi í umhverfi sínu. Þar gegna atvinnurekendur og samstarfsfólk mikilvægu hlutverki. Við í Tilveru, samtökum um ófrjósemi, hvetjum atvinnurekendur til að viðurkenna að frjósemisvandi og meðferðir við honum séu raunverulegt viðfangsefni á vinnustöðum. Stuðningur getur meðal annars falist í því að tryggja starfsfólki fjarveru vegna meðferða án skerðingar á orlofi eða launum, bjóða sveigjanlegt vinnufyrirkomulag þar sem því verður við komið og standa vörð um friðhelgi einkalífs. Fólk þarf að geta óskað eftir stuðningi án þess að þurfa að deila viðkvæmum upplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er. Þótt réttur til fjarveru vegna tæknifrjóvgunarmeðferða sé þegar tryggður í sumum kjarasamningum heyrum við hjá Tilveru því miður enn frásagnir af fólki sem fær ekki nægan stuðning eða sveigjanleika á vinnustað meðan á meðferð stendur. Við viljum að þessum frásögnum fækki og að stuðningur við fólk með frjósemisvanda verði sjálfsagður hluti af vinnustaðamenningu. Með skilningi, sveigjanleika og virðingu geta vinnustaðir létt undir með fólki á krefjandi tímum. Höfundur er stjórnarmaður í Tilveru, samtökum um ófrjósemi.
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun