Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir og Íris Björk Hreinsdóttir skrifa 3. nóvember 2026 06:31 Í drögum að frumvarpi til breytinga á lögreglulögum, sem hefur verið til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda, er dregin upp alvarleg mynd af þróun skipulagðrar brotastarfsemi hér á landi. Í greinargerðinni kemur fram að umfang skipulagðar brotastarfsemi hafi aukist verulega á undanförnum árum, hún er orðin flóknari og tengsl innlendra brotahópa við erlend brotasamtök hafa aukist. Jafnframt sé nýrri tækni, flóknum fjármálagerningum og alþjóðlegum tengslum í auknum mæli beitt til að skipuleggja brot og torvelda rannsóknir. Þetta kemur jafnframt skýrt fram í skýrslu Ríkislögreglustjórans frá því í nóvember 2025. Það er líka sláandi sem þar er sett fram að brotahópar hér hafi tvöfaldast á skömmum tíma og séu nú um 20 talsins. Einni kemur fram í skýrslunni að skipulagðir brotahópar starfa um allt land. Hér á landi eru bæði erlendir hópar sem tengjast alþjóðlegum brotahópum en einnig íslenskir, þar af einn sem hefur verið talinn á meðal hættulegustu brotahópa Evrópu. Þetta gefur tilefni til að huga að því hvernig varnir samfélagsins gegn skipulagðri brotastarfsemi eru skipulagðar. Það er því fagnaðarefni að með frumvarpsdrögunum sé stefnt að aukinni sérhæfingu, öflugri rannsóknargetu og bættri samhæfingu innan lögreglu. Um leið vaknar sú spurning hvernig tryggja megi að sérþekking, upplýsingar og úrræði nýtist í átt að árangri. Breytt brotastarfsemi kallar á öflugri rannsóknargetu Rannsóknir mála tengdum skipulagðri brotastarfsemi krefjast sérþekkingar, greiningar á fjármagnshreyfingum og geta kallað á samstarf þvert á stofnanir, atvinnulífið og landamæri. Í frumvarpsdrögunum er meðal annars gert ráð fyrir sérstakri rannsóknardeild vegna skipulagðrar brotastarfsemi. Sú áhersla á sérhæfingu og samhæfingu er málefnaleg og tímabær og ber að fagna. Í greinargerðinni er jafnframt litið til fyrirkomulags á öðrum Norðurlöndum. Öflug löggæsla er mikilvægur þáttur í viðbrögðum. Árangur getur þó einnig ráðist af því hvernig þekking og upplýsingar annarra aðila nýtast við forvarnir og rannsóknir, innan þeirra marka sem lög setja. Brotastarfsemin er ekki alltaf það sem sýnist Skipulögð brotastarfsemi getur birst með margvíslegum hætti og ekki er alltaf augljóst að einstök brot séu hluti af umfangsmeiri starfsemi. Netsvik, fjársvik, vátryggingasvik, fíkniefnaviðskipti og peningaþvætti geta eftir atvikum tengst skipulögðum brotahópum sem starfa þvert á landamæri og nýta sér ólíkar leiðir til að afla fjár, færa það milli aðila og dylja uppruna þess. Það sem við fyrstu sýn virðist afmarkað brot getur þannig verið einn hlekkur í mun stærri keðju. Keðju sem mikilvægt er að uppræta með því að efla getu hérlendis til að tengja aðila og brot saman hérlendis og yfir landamæri. Áskorunin felst því ekki síst í því að greina þessi tengsl og rekja brotastarfsemina til þeirra sem standa að baki henni. Slíkar rannsóknir geta kallað á umfangsmikla greiningu og samstarf við erlend lögregluyfirvöld. Til þess þarf sérhæfða þekkingu, öfluga rannsóknargetu, góð tengsl og nægan mannafla. Það er því mikilvægt að þær breytingar sem nú eru til skoðunar miði ekki aðeins að breyttu skipulagi lögreglu heldur skapi einnig raunhæfar forsendur til að rannsaka flókna, skipulagða brotastarfsemi og ná til þeirra sem stýra henni. Skilvirkni og skýr lagaumgjörð Í umræðu um aukna getu lögreglu er ástæða til að horfa einnig til samstals við aðila utan hennar. Lögregla, eftirlitsstofnanir, fjármálafyrirtæki og vátryggingafélög hafa hvert sitt hlutverk í þjóðfélaginu, en sameiginlegir hagsmunir eru af því að fyrirbyggja og upplýsa alvarlega brotastarfsemi. Forsenda árangurs er að samstarfsleiðir séu skýrar, skilvirkar og einfaldar og að upplýsingamiðlun byggist á viðeigandi lagaheimildum. Jafnframt er mikilvægt að horfa til persónuverndar, meðalhófs og réttaröryggis, þegar það á við. Þessu tengt væri gagnlegt að meta hvort fyrirliggjandi samstarfsfarvegir og lagaumgjörð styðji nægilega vel við þau markmið sem stefnt er að með frumvarpinu. Slíkt mat þarf fyrst og fremst að tryggja fyrirliggjandi úrræði séu nýtt með skilvirkum og ábyrgum hætti. Með vísan til framangreinds má finna jafnvægi í samstarfi og tryggja að kostnaður sem fellur á fyrirtæki, sem geta þurft að koma að rannsóknum yfiralda, sé ekki úr hófi og gætt sé að lögum og reglum sem gilda um miðlun upplýsinga í víðu samhengi. Áhersla á árangur Þegar metið er hvernig styrkja megi varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi þarf að horfa til þess hvort samstarf, upplýsingagjöf og rannsóknarúrræði skili tilætluðum árangri, en ekki einungis umfangs regluverks eða fjölda tilkynninga. Það nægir ekki að rannsaka svik afmarkað eða stöðva einstaka greiðslu. Til að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi þarf að tengja saman brot og upplýsa hvaða skipulagði brotahópur stendur þar að baki. Samstillt viðbrögð Frumvarpsdrögin fela meðal annars í sér mikilvæga viðleitni til að mæta breyttu eðli og umfangi skipulagðrar brotastarfsemi. Markmiðið um aukna sérhæfingu og samhæfingu lögreglu er bæði tímabært og jákvætt. Við áframhaldandi útfærslu er jafnframt tækifæri til að huga að því hvernig efla megi samstarf við þá aðila sem búa yfir sérhæfðri þekkingu á fjármagnshreyfingum, svikum og áhættugreiningu. Öflug rannsóknargeta, skýr ábyrgðarskipting og traust samstarf geta stutt hvert annað. Með því að byggja á þessum þáttum má styrkja varnir samfélagsins gegn skipulagðri brotastarfsemi, án þess að slaka á kröfum um réttaröryggi og tryggja samspil meðalhófs og vandaðrar málsmeðferð. SFF fagna því að tekin séu jákvæð skref í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi. Höfundar eru framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og yfirlögfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun