Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 3. nóvember 2026 08:03 Nú eru tíu ár síðan Viðreisn var fyrst kjörin á Alþingi. Við lögðum af stað með skýra sýn á betra Ísland. Ísland þar sem almannahagsmunir ganga framar sérhagsmunum, ríkisfjármálin eru rekin af ábyrgð, fyrirtækin fá að blómstra og fólk hefur frelsi og tækifæri til að skapa sér gott líf. Viðreisn var stofnuð vegna þess að við höfðum trú á að Ísland gæti gert betur. Og þá trú höfum við enn. En hugsjónir einar og sér breyta engu. Til þess þarf pólitískan kjark. Vilja til að taka erfiðar ákvarðanir og þor til að breyta því sem hefur fengið að standa óbreytt allt of lengi. Og það er einmitt það sem við höfum verið að gera. Í þágu fjöldans, ekki fárra. Verkin skipta máli Á innan við tveimur árum í ríkisstjórn höfum við lagt grunn að hallalausum ríkisfjármálum í fyrsta sinn í tæpan áratug og komið á stöðugleikareglu til að tryggja meiri festu og ábyrgð. Við höfum leiðrétt veiðigjöld þannig að þjóðin fái sanngjarnari hlut fyrir nýtingu sameiginlegrar auðlindar. Við höfum samþykkt atvinnustefnu, ráðist í einföldun regluverks og sameiningu stofnana til að draga úr óþarfa umsvifum ríkisins og skapa betri skilyrði fyrir atvinnulífið. Við höfum líka stigið mikilvæg skref í öryggismálum, styrkt löggæslu og lagt grunn að markvissari stefnu um varnir og öryggi Íslands. Og við erum að vinna að því að breyta kerfum sem hafa allt of lengi brugðist fólki. Ekki síst börnum sem þurfa á stuðningi að halda. Ráðist hefur verið í átak til að stytta biðlista eftir greiningum og þjónustu og unnið er að uppbyggingu úrræða fyrir börn með fjölþættan vanda. Vinna við niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu, þar sem byrjað verður á börnum, er í fullum gangi. Sem er gríðarlega mikilvægt og stórt mál fyrir Viðreisn. Kerfin eiga að vinna fyrir fólkið, ekki öfugt. Auðvitað fylgja ríkisstjórnarsamstarfi málamiðlanir og við erum ekki alltaf sammála um allt. En við tókum sæti við ríkisstjórnarborðið til að breyta hlutunum. Ekki til að hræðast ákvarðanir. Fyrir vikið höfum við samhenta ríkisstjórn sem gengur í verkin. Því árangurinn á ekki að mælast í fjölda samþykktra frumvarpa eða sameinaðra stofnana. Hann á að mælast í því hvort lífið verði betra fyrir fólkið í landinu. Hvort ungt fólk geti eignast heimili. Hvort fjölskyldur ráði betur við afborganir. Hvort fyrirtæki geti vaxið og skapað verðmæti. Hvort eldri borgarar hafi greiðan aðgang að hjúkrunarrými og þjónustu. Og hvort börn sem þurfa hjálp fái hana þegar þau þurfa á henni að halda. Það er mælikvarðinn. Og það er verkefnið sem við erum komin vel á veg með, þótt enn sé mikið verk óunnið. Öryggi og von í breyttum heimi Við lifum á tímum þar sem óvissa og óöryggi fara vaxandi. Stríð geisa í Evrópu, lýðræði og mannréttindi eiga undir högg að sækja og ný tækni umbreytir samfélögum okkar. Þegar fólk finnur fyrir ótta er eðlilegt að það leiti öryggis. En öryggi felst ekki í því að loka sig af Og forðast breytingar. Raunverulegt öryggi byggist á traustum efnahag, réttarríki, öflugri velferð og samstarfi við aðrar þjóðir. Og því þarf að fylgja von. Von um að börnin okkar fái fleiri tækifæri en við, að hugvit og frumkvæði fái að blómstra og að við getum byggt hér samfélag þar sem fólk hefur frelsi til að skapa sér gott líf. Það er verkefni frjálslyndra stjórnmála. Að taka áhyggjur fólks alvarlega án þess að ala á ótta. Að bjóða bæði öryggi og von. Kjarkur til framtíðar Viðreisn hefur líka þurft að takast á við mótvind. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið var okkur vonbrigði. Við virðum niðurstöðuna. En hugsjónin um opið, frjálslynt og alþjóðasinnað Ísland hverfur ekki við það. Rúmlega 105 þúsund Íslendingar vildu halda þeim möguleika opnum og sú framtíðarsýn á áfram fullt erindi. Við höfum líka átt mikilvæg samtöl innan Viðreisnar síðustu vikur. Nú síðast á góðum og fjölmennum fundi flokksmanna í gærkvöldi. Sterkur stjórnmálaflokkur verður ekki til af því að allir eru alltaf sammála heldur af því að fólk getur tekist á um hugmyndir, hlustað og lært. Þegar jaðrarnir verða háværari og öfgar og einangrunarhyggja sækja í sig veðrið þarf Ísland á sterkri, frjálslyndri miðju að halda. Miðju sem lætur ekki teyma sig út á jaðrana heldur stendur óhrædd með lýðræði, mannréttindum, frelsi og ábyrgð. Og nú þegar gamlir flokkar færa sig yst út á hægri jaðarinn skapast frekara tómarúm. Þá verður mikilvægi Viðreisnar sjaldan meira. Við eigum ekki að láta hræðslu við breytingar ráða för. Ekki sætta okkur við stöðnun þegar við vitum að hægt er að gera betur. Og alls ekki láta þá sem hæst hafa sannfæra okkur um að framtíðin sé eitthvað sem við eigum að óttast. Viðreisn var stofnuð af fólki sem hafði trú á Íslandi og trú á því að við gætum gert betur. Sú trú er jafn sterk í dag og hún var fyrir tíu árum. Og við erum rétt að byrja. Höfundur er formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun