Danske Bank afskrifar 180 milljarða vegna lélegra lána 5. maí 2009 08:24
Danske Bank, stærsti banki Danmerkur, afskrifaði 8 milljarða danskra kr. eða um 180 milljarða kr. vegna lélegra lána á fyrsta ársfjórðungi ársins. Samkvæmt uppgjöri bankans fyrir tímabilið sem birt var í morgun nam hagnaður bankans, þrátt fyrir þessar afskriftir, 1,6 milljarði danskra kr. eða um 36 millljarða kr. Til samanburðar nam hagnaður bankans fyrstu þrjá mánuði ársins 2007 um 2,6 milljörðum danskra kr. Peter Staarup bankastjóri Danske Bank segir að tekjur bankans á fyrsta ársfjórðungi hafi aldrei verið hærri en á móti kom tap vegna lélegra lána í lánasafni bankans. Í tilkynningu um uppgjörið segir að í heildina sé útkoma bankans ekki nægilega góð en þó betri en vænst hafði verið. Hlutir í Danske Bank hafa verið á uppleið í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í morgun.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira