Teitur: Baráttan skilaði sigrinum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. janúar 2009 21:57 Teitur Örlygsson, núverandi þjálfari Stjörnunnar.
Teitur Örlygsson stýrði í kvöld Stjörnunni til sigurs gegn sterku liði Grindavíkur í sínum fyrsta deildarleik síðan hann tók við Garðbæingum. „Þetta var nokkuð sannfærandi enda vorum við yfir allan leikinn. Það er gaman gegn liði eins og Grindavík," sagði Teitur í samtali við Vísi eftir leikinn. „Við vorum tilbúnir í þennan leik og ég var ánægður með baráttuna og liðsheildina. Það voru allir að gera gagn í liðinu og það skilaði sigrinum í kvöld." „Við erum kannski ekki með bestu einstaklingana en við ætlum að gera gott lið úr því sem við erum með í höndunum. Það er svo mitt hlutverk að láta þá vita hvað þeir eru í góðu liði." Teitur sagði að Grindvíkingar hefðu ekki náð að spila sinn besta leik í kvöld. Þetta var aðeins annað tap liðsins í deildinni í vetur. „Grindvíkingar eru með virkilega vel mannað lið og árangur þeirra kemur ekki á óvart. En það var dugnaðurinn og eljan sem skilaði sigrinum í kvöld. Nú er markmiðið að vinna eins marga leiki og við getum og vonandi fleytir það okkur upp töfluna og í úrslitakeppnina. Það þarf ekki marga sigurleiki í röð til að hoppa upp um nokkur sæti eins og staðan í deildinni er í dag."
Dominos-deild karla Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Kona vann Ísmaraþonið á Suðurskautslandinu í fyrsta sinn Sport Fleiri fréttir Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Sjá meira