Birgir Leifur aftur yfir pari Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. mars 2009 12:45 Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur. Nordic Photos / Getty Images
Birgir Leifur Hafþórsson náði ekki að fylgja eftir góðri byrjun á opna Andalúsíu-mótinu í golfi á Spáni og hefur lokið keppni á samtals tveimur höggum yfir pari. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi og er Birgir Leifur sem stendur í 42.-45. sæti af þeim 69 keppendum sem komust í gegnum niðurskurðinn. Birgir Leifur lék ágætlega í dag og fékk alls fjóra fugla. Hann fékk hins vegar einnig þrjá skolla og einn skramba. Það var hans eini skrambi á öllu mótinu en hann fékk einnig örn á fyrsta keppnisdeginum. Hann lék á 73 höggum í dag eða á einu yfir pari. Honum hefur gengið þokkalega að pútta og þrípúttaði aðeins einu sinni í dag. Hann tvípúttaði á tíu holum. Miðað við núverandi stöðu fær hann á milli fimm og sex þúsund evrur í verðlaunafé fyrir árangurinn.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira