Misræmi Guðlaugs Þórs 9. apríl 2009 10:24 Guðlaugur Þór Þórðarson á að hafa haft milligöngu um risastyrki til Sjálfstæðisflokksins samkvæmt Morgunblaðinu.
Misræmi er á milli þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson fyrrverandi heilbrigðisráðherra sagði um vitneskju sína um styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins og þess sem Morgunblaðið fullyrðir um málið í dag. Í samtali við Vísi í gær sagðist Guðlaugur ekki vera inni í fjármálum flokksins. Hann hafi ekki vitað af styrk FL Group upp á 30 milljónir króna til Sjálfstæðisflokksins í lok desember 2006, þegar hann var stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Þegar Vísir spurði hann um málið í gær, sagðist Guðlaugur hafa heyrt af styrknum samdægurs, eða fyrir nokkrum dögum. Í Morgunblaðinu í dag er hins vegar fullyrt að Guðlaugur Þór hafi haft forgöngu um að útvega flokknum þessa styrki í árslok 2006. Honum hafi þó ekki verið kunnugt um upphæðina. Hann hafi boðið Anda Óttarssyni þá nýjum framkvæmdastjóra flokksins að hafa milligöngu um styrki frá um 10 fyrirtækjum, sem hvert um sig myndi leggja til um þrjár milljónir króna þannig að undir forystu FL-Group fengjust um 30 milljónir króna í flokkssjóðinn. Ekki náðist í Guðlaug Þór þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Kosningar 2009 Tengdar fréttir Stoðir: Upplýsingar ekki frá okkur komnar „Þessar upplýsingar eru ekki frá okkur komnar. Ég hef enga vitneskju um þetta mál og get því hvorki staðfest það né neitað,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, um 30 milljóna króna styrk sem FL Group greiddi til Sjálfstæðisflokksins undir lok ársins 2006. 7. apríl 2009 21:49 Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög „Það er siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög sem maður sjálfur átti þátt í að samþykkja, þó þau hafi ekki formlega tekið gildi," segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við frétt Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins þremur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. 7. apríl 2009 21:38 Ábyrgð Geirs stórjókst á sjö mínútum Ábyrgð Geirs H. Haarde jókst talsvert á sjö mínútum því fyrsta fréttatilkynningin sem fjölmiðlum barst í hendur sagðist hann bera ábyrgð á 30 milljón króna styrk FL Group til flokksins. Þar var ekkert minnst á 25 milljón króna styrk frá Landsbankanum. 8. apríl 2009 19:44 Árni M: Ég hafði enga hugmynd „Ég hafði enga hugmynd. Ég heyrði þetta bara fyrst í fréttunum áðan," sagði fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Árni M. Mathíesen, spurður hvort hann hefði heyrt af risaháum styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í lok desember árið 2006, aðeins þremur dögum áður en lögin tóku gildi um hámarksstyrk fyrirtækja til stjórnmálaflokka. 7. apríl 2009 22:10 Vill létta leynd af styrkjum stjórnmál Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, mun beita sér fyrir því að leynd verði létt af fjárstyrkjum til Samfylkingarinnar, ríki einhver leynd yfir þeim. Svo geti verið að í einhverjum tilfellum hafi aðilar veitt styrki með leynd í huga, en leitað verði til þeirra og óskað eftir að leyndinni verði aflétt. 9. apríl 2009 06:30 Aldrei heyrt um neitt í líkingu við FL-styrkinn Þorgeir Baldursson fyrrverandi formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa heyrt um styrk sem sé eitthvað í líkingu við þær 30 milljónir króna sem flokkurinn fékk frá FL-Group árið 2006. Þorgeir segist hafa verið hættur þegar umræddur styrkur barst. Vilhjálmur Egilsson núverandi formaður fjármálaráðs segist hafa byrjað eftir að styrkurinn var veittur. Hvorugur þeirra segist vita hver gegndi stöðunni í millitíðinni en fjármálaráð sér um að afla styrkja fyrir flokkinn. 8. apríl 2009 13:17 Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hneykslaður á styrk FL Group Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, er hneyksluð á 30 milljón fjárstyrk sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk í lok árs 2006. 8. apríl 2009 14:07 FL Group styrkti Sjálfstæðisflokk um þrjátíu milljónir FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um þennan styrk meðal annars til rannsóknar. 7. apríl 2009 18:34 Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að styrk FL Group Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að því sjálfur að biðja um 30 milljóna króna fjárstyrk frá FL Group. Nokkrir forystumenn flokksins segjast ekki hafa haft hugmynd um umræddan styrk. 8. apríl 2009 12:00 Kjartan vissi ekki um FL styrkinn Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, vissi ekki af 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006. Hann heyrði fyrst af styrknum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og segir málið sér algjörlega óviðkomandi. 8. apríl 2009 17:16 Bolli í 17: Trúi ekki að Kjartan hafi samþykkt þetta Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, trúir því hreinlega ekki að Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hafi samþykkt styrk frá FL Group upp á 30 milljónir rétt undir lok árs 2006. 8. apríl 2009 16:17 Guðlaugur Þór: Ekki inn í fjármálum flokksins „Ég er ekki inn í fjármálum flokksins," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins varðandi þrjátíu milljón króna styrk sem FL Group veitti Sjálfstæðisflokknumi lok desember 2006. 8. apríl 2009 18:07 FL málið í höndum Bjarna og Þorgerðar Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ræddi 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006 á miðstjórnarfundi sem haldinn var í dag, en boðað var til fundarins fyrr í vikunni. 8. apríl 2009 15:43 Bjarni og Þorgerður funda um málið Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður eru ekki á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins sem hófst klukkan 16:00 í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu funda þau um FL-Group málið svokallaða. Á fundinum munu þau vera að fara yfir stöðuna sem upp er komin í kjölfar frétta Stöðvar 2 af 30 milljóna króna styrk FL-Group til Sjálfstæðisflokksins árið 2006. 8. apríl 2009 16:27 Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira
Stoðir: Upplýsingar ekki frá okkur komnar „Þessar upplýsingar eru ekki frá okkur komnar. Ég hef enga vitneskju um þetta mál og get því hvorki staðfest það né neitað,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, um 30 milljóna króna styrk sem FL Group greiddi til Sjálfstæðisflokksins undir lok ársins 2006. 7. apríl 2009 21:49
Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög „Það er siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög sem maður sjálfur átti þátt í að samþykkja, þó þau hafi ekki formlega tekið gildi," segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við frétt Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins þremur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. 7. apríl 2009 21:38
Ábyrgð Geirs stórjókst á sjö mínútum Ábyrgð Geirs H. Haarde jókst talsvert á sjö mínútum því fyrsta fréttatilkynningin sem fjölmiðlum barst í hendur sagðist hann bera ábyrgð á 30 milljón króna styrk FL Group til flokksins. Þar var ekkert minnst á 25 milljón króna styrk frá Landsbankanum. 8. apríl 2009 19:44
Árni M: Ég hafði enga hugmynd „Ég hafði enga hugmynd. Ég heyrði þetta bara fyrst í fréttunum áðan," sagði fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Árni M. Mathíesen, spurður hvort hann hefði heyrt af risaháum styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í lok desember árið 2006, aðeins þremur dögum áður en lögin tóku gildi um hámarksstyrk fyrirtækja til stjórnmálaflokka. 7. apríl 2009 22:10
Vill létta leynd af styrkjum stjórnmál Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, mun beita sér fyrir því að leynd verði létt af fjárstyrkjum til Samfylkingarinnar, ríki einhver leynd yfir þeim. Svo geti verið að í einhverjum tilfellum hafi aðilar veitt styrki með leynd í huga, en leitað verði til þeirra og óskað eftir að leyndinni verði aflétt. 9. apríl 2009 06:30
Aldrei heyrt um neitt í líkingu við FL-styrkinn Þorgeir Baldursson fyrrverandi formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa heyrt um styrk sem sé eitthvað í líkingu við þær 30 milljónir króna sem flokkurinn fékk frá FL-Group árið 2006. Þorgeir segist hafa verið hættur þegar umræddur styrkur barst. Vilhjálmur Egilsson núverandi formaður fjármálaráðs segist hafa byrjað eftir að styrkurinn var veittur. Hvorugur þeirra segist vita hver gegndi stöðunni í millitíðinni en fjármálaráð sér um að afla styrkja fyrir flokkinn. 8. apríl 2009 13:17
Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hneykslaður á styrk FL Group Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, er hneyksluð á 30 milljón fjárstyrk sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk í lok árs 2006. 8. apríl 2009 14:07
FL Group styrkti Sjálfstæðisflokk um þrjátíu milljónir FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um þennan styrk meðal annars til rannsóknar. 7. apríl 2009 18:34
Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að styrk FL Group Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að því sjálfur að biðja um 30 milljóna króna fjárstyrk frá FL Group. Nokkrir forystumenn flokksins segjast ekki hafa haft hugmynd um umræddan styrk. 8. apríl 2009 12:00
Kjartan vissi ekki um FL styrkinn Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, vissi ekki af 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006. Hann heyrði fyrst af styrknum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og segir málið sér algjörlega óviðkomandi. 8. apríl 2009 17:16
Bolli í 17: Trúi ekki að Kjartan hafi samþykkt þetta Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, trúir því hreinlega ekki að Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hafi samþykkt styrk frá FL Group upp á 30 milljónir rétt undir lok árs 2006. 8. apríl 2009 16:17
Guðlaugur Þór: Ekki inn í fjármálum flokksins „Ég er ekki inn í fjármálum flokksins," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins varðandi þrjátíu milljón króna styrk sem FL Group veitti Sjálfstæðisflokknumi lok desember 2006. 8. apríl 2009 18:07
FL málið í höndum Bjarna og Þorgerðar Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ræddi 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006 á miðstjórnarfundi sem haldinn var í dag, en boðað var til fundarins fyrr í vikunni. 8. apríl 2009 15:43
Bjarni og Þorgerður funda um málið Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður eru ekki á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins sem hófst klukkan 16:00 í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu funda þau um FL-Group málið svokallaða. Á fundinum munu þau vera að fara yfir stöðuna sem upp er komin í kjölfar frétta Stöðvar 2 af 30 milljóna króna styrk FL-Group til Sjálfstæðisflokksins árið 2006. 8. apríl 2009 16:27