Goldman Sachs fyrsti bankinn á leið út úr kreppunni 14. apríl 2009 09:02
Goldman Sachs skilaði hagnaði upp á 1,8 milljarða dollara eða rúmlega 200 milljarða kr. á fyrsta ársfjórðungi ársins. Er þetta uppgjör töluvert umfram væntingar sérfræðinga og virðist Goldman vera fyrsti bandaríski bankinn sem er að komast út úr fjármálakreppunni. Samkvæmt frétt um málið í Financial Times mun hin sterka útkoma á ársfjórðungnum leiða til þess að Goldman ætlar sér að endurgreiða ríkisstyrki upp á allt að 10 milljörðum dollara sem bankinn fékk á síðasta ári. Ætlunin er að endurgreiða styrkina með sölu á hlutafé en hlutir í Goldman hafa hækkað töluvert að undanförnu. Er talið að aðrir bandarískir bankar muni fylgja þessu fordæmi Goldman til að þeir líti ekki út fyrir að vera "veikari" eins og það er orðað í Financial Times. Til samanburðar má nefna að á fjórða ársfjórðungi síðasta árs skilaði Goldman tapi upp á 2,1 milljarða dollara.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira