Skosk athafnakona kaupir Blooming Marvellous 26. febrúar 2009 09:50
Verslunarkeðjan Blooming Marvellous hefur verið seld til skosku athafnakonunnar Elaine McPherson. Keðjan sem verslar með föt og vörur fyrir sængurkonur og nýbura var í eigu Kcaj fjárfestingarfélagsins sem aftur er að mestu í eigu Milestone. Blooming Marvwllous varð gjaldþrota eftir áramótin og komu skiptastjórarnir frá félaginu MCR. Hefur síðan verið unnið að sölu á búðum og eignum Blooming Marvellous en búðirnar eru 14 talsins. Philip Duffy hjá MCR segir í samtali við Financial Times að tilboð McPherson í verslunarkeðjuna hafi verið metið það besta sem völ var á í stöðunni. „Tilboðið var ekki aðeins það hæsta sem kom heldur mun kaupandinn koma með mikla og góða reynslu inn í reksturinn," segir Duffy. McPherson, sem er fyrrum stjórnandi MK One, segir að kaupin séu gott tækifæri til að eignast vörumerki sem sé þekkt og sterkt þrátt fyrir erfiðleika á markaðinum að undanförnu. Kcaj var stofnað af Jón Scheving Thorsteinssyni og var lengi í eigu fjárfestingarfélags hans Arev áður en meirihluti sjóðsins var seldur til Milestone í fyrra. Nöfnin Kacj og Arev eru tekin úr sjónvarpsþáttunum Coronation Street.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira