Rafvirki óvænt 1.300 milljarða í mínus í banka sínum 30. mars 2009 11:02
Hinn 32 ára gamli danski rafvirki, Dennis Pallesgaard varð vægast sagt fyrir áfalli þegar hann athugaði stöðuna á bankareikningi sínum um daginn. Þar stóð að hann væri 63 milljarða danskra kr. í mínus á reikninginum eða um 1.300 milljarða kr. Nákvæmlega stóð að reikningur hans væri 63.002.842.493 danskrar kr. í mínus. Þetta kemur fram á vefsíðunni eb.dk. „Ég hafði heyrt af háum þjónustugjöldum í bönkunum en þetta var svo há tala að ég varð að stafa mig í gegnum hana til að skilja að þetta voru ekki milljónir heldur milljarðar," segir Pallesgaard. Rafvirkinn hafði samband við bankann sem viðurkenndi að mistök hefðu verið gerð. Þegar bankinn ætlaði að millifæra 3.200 danskrar kr. af reikningi hans vegna þinglýsingar sló bankastarfsmaður óvart inn reikningsnúmer rafvirkjans í staðinn. Vandamálið er leyst og Pallesgaard er ekki lengur í hópi fátækustu manna Danmerkur.
Mest lesið Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Verslunarrisar mættir til leiks Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Samstarf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Fleiri fréttir Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira