Meðalaldur byrjunarliðsins var aðeins 20,2 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2009 13:30 Haukur Helgi Pálsson var stigahæstur Fjölnismanna í gær. Mynd/Stefán
Fjölnismenn tryggðu sér í gær sæti í Iceland Express deild karla í körfubolta með öruggum sigri á Val í öðrum leik liðanna í lokaúrslitum. Fjölnir vann leikinn 96-77 eftir að hafa náð mest 33 forustu í leiknum. Fjölnir vann því einvígið 2-0 þar sem liðið vann tíu stiga sigur, 88-78, í fyrri leik liðanna á heimavelli Vals. Fjölnir varð aðeins annað liðið til að vinna úrslitakeppni 1. deildar karla án þess að hafa heimavallarrétt í neinu einvígi en Grafarvogsliðið endaði í 4. sæti deildarinnar í vetur. Hitt liðið var lið Stjörnunnar árið 2007 en Stjarnan kom þá í síðasta sæti inn í úrslitakeppnina. Það er gaman að skoða byrjunarlið Fjölnis en í meirihluta eru þrír leikmenn sem eru ekki orðnir 18 ára gamlir. Þeir Ægir Þór Steinarsson og Arnþór Freyr Guðmundsson verða 18 ára í maí og júní og Haukur Helgi Pálsson er síðan einu ári yngri. Þessir þrír áttu allir mjög góðan leik í gær og voru saman með 40 stig, 11 fráköst og 15 stoðsendingar. Haukur var með 18 stig, Arnþór skoraði 15 stig og Ægir var með 7 stig og 7 stoðsendingar. Meðalaldur byrjunarliðs Fjölnis í gær var aðeins 20,2 ár en hinir tveir byrjunarliðsmenn liðsins voru hinn tvítugi miðherji Sindri Már Kárason og Bandaríkjamaðurinn Roy Smallwood sem er 28 ára gamall.
Dominos-deild karla Mest lesið Hefur eignast barn en þarf samt að sanna það að hún sé kona Sport Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Enski boltinn Lyon krækir í leikmann Liverpool Enski boltinn Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Fótbolti Ómar Björn: Misreiknaði boltann Fótbolti Dagskráin: Besta deildin ræður ríkjum Sport Fleiri fréttir Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Sjá meira