Riksbanken hagnaðist á gjaldmiðlasamningi við SÍ 18. febrúar 2009 12:14
Freyr Hermannsson sérfræðingur hjá alþjóða- og markaðsdeild Seðlabanka Íslands segir að frétt sem birt var á vísir.is í gær um milljarðatap norrænna seðlabanka af gjaldmiðlaskiptasamningum þeirra við Seðlabanka Íslands (SÍ) sé röng. Hið rétta sé að seðlabanki Svíþjóðar, Riksbanken, hafi hagnast á samningi sínum. Raunar muni Riksbanken senda viðkomandi fjölmiðlum, Dagens Industri í Svíþjóð og Berlinske Tidende í Danmörku leiðréttingu vegna frétta þeirra af málinu. Freyr segir að rangfærslurnar séu vegna þess að blaðamennirnir skilji ekki reikningsskil. Þeir skoði aðeins stöður sem myndast vegna skiptasamnings en taka ekki mið af því að á móti kemur staða sem birtist í gjaldeyrisforða. Tapið af skiptasamningnum, 352 milljónir sænskra króna, er vegna styrkingar krónunnar (ekki veikingar eins og haldið er fram). Á móti komi svo 354 milljóna sænskra króna hagnaður í gjaldeyrisforða sem ekki er minnst á. Í töflu 4 í ársskýrslu Riksbanken komi fram að hagnaður (avkastning) af skiptasamningi við Seðlabanka Íslands sé 2 milljónir sænskra króna. Þetta sé staðfest í skýringum.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira