Konur eru nákvæmari við skattskýrslugerð en karlar Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. júlí 2009 16:00 Konur skila einfaldara og nákvæmara skattaframtali.
Um helmingi fleiri karlar en konur svindla eða gera mistök þegar þeir gefa upp til skatts. Þetta sýnir rannsókn dönsku skattstofunnar. Meira en 16% af öllum körlum sem gefur upp til skatts svindlar eða gerir mistök við skattskýrslugerð, en einungis 11% kvenna gera mistök eða svindla. Hið sama gildir þegar verið er að tala um fólk sem hefur mjög einfalt heimilisbókhald, eins og Danirnir kalla það. Í slíkum tilfellum gera 6% karla og 4% kvenna mistök eða svindla. Danska skattstofan telur að skýringuna á þessum kynjamun megi rekja til þess að skattskýrslan hjá körlum sé yfirleitt flóknari en hjá konum. Karlar eru til dæmis líklegri til þess að eiga verðbréf. Þá eru karlmenn líka líklegri til að eiga sumarhús, sem þeir leigja jafnvel út. Rannsókn dönsku skattstofunnar byggði á gögnum frá 10 þúsund dönskum borgurum, eftir því sem fram kemur á fréttavef DR.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira