Aurum ræðir við Landsbankann um skuldbreytingu 5. október 2009 10:16
Aurum Holding á nú í viðræðum við Landsbankann um að breyta 20 milljón punda, eða 4 milljarða kr., skuld félagsins við bankann í hlutafé. Baugur átti 37,8% í Aurum en PwC hefur tekið við stjórn þess hlutar fyrir hönd skilanefndar Landsbankans. Í frétt um málið á vefsíðunni This is Money segir að samkvæmt heimildum síðunnar er mögulegt að samningar um þessa skuldbreytingu nái fram strax í næsta mánuði. Aurum Holding rekur úra- og skartgripaverslanakeðjurnar Goldsmiths, Mappin & Webb og Watches of Switzerland. Sem stendur er Aurum að endurskoða eignasafn sitt og endurskipuleggja yfirstjórn sína. Talsmenn félagsins vildu ekki tjá sig um þær breytingar við This is Money. Skilanefnd Landsbankans leysti til sín þessa eign Baugs í febrúar s.l. og í mars sögðu þrír Íslendingar, þau Kristín Jóhannesdóttir, Pálmi Haraldsson og Pétur Már Halldórsson, sig úr stjórn Aurum Holdings.
Mest lesið Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira