Tilvist eyjanna ræðst á ráðstefnunni 10. desember 2009 03:45 Samhliða loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna er í Kaupmannahöfn efnt til loftslagsvettvangs þar sem almenningur fær tækifæri til að tjá viðhorf sín til loftslagsmála. Þar mátti sjá þessi kröfuspjöld í gær. Nordicphotos/AFP
Fulltrúi Kyrrahafsríkisins Tuvalu hafði ekki erindi sem erfiði á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Tillaga hans um að ríki heims setji sér strangari markmið varðandi samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fékk lítinn hljómgrunn. „Framtíð okkar ræðst af niðurstöðu þessa fundar,“ sagði Ian Fray, fulltrúi Tuvalu, á ráðstefnunni í gær. Hlýnun jarðar með bráðnun jökla hefur líklega það í för með sér að eyríkið Tuvalu fer á kaf, rétt eins og fleiri eyjar á Kyrrahafinu. Hann lagði til að ríki heims setji sér það markmið að hitastig jarðar hækki ekki um meira en 1,5 gráður frá því sem var fyrir iðnvæðingu. Á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn er reynt að ná samkomulagi um að hitastigið hækki ekki meira en 2 gráður. Connie Hedegaard, forseti ráðstefnunnar, sá ekki ástæðu til þess að tillagan yrði tekin fyrir, þar sem hún mætti strax andstöðu margra ríkja, meðal annars olíuframleiðsluríkja sem ættu erfitt með að standa undir ströngum takmörkunum á brennslu jarðefnaeldsneytis. Aðaldeilumálið á ráðstefnunni snýst um fjárhagsaðstoð til fátækari ríkja til að auðvelda þeim að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. - gb
Loftslagsmál Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Erlent Fleiri fréttir Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Sjá meira