Kostnaðurinn við Kaupþing á Mön nemur 40 milljörðum 13. júlí 2009 08:21
Kostnaðurinn við að endurgreiða innistæðueigendum hjá Singer & Friedlander banka Kaupþings á eyjunni Mön (KSFIOM) nemur 193 milljónum punda eða um 40 milljörðum kr. Þetta kemur fram í frétt á BBC sem vitnar í skjöl máli sínu til stuðnings. Samkvæmt sérstöku samkomulagi geta innistæðueigendurnir fengið allt að 50.000 pund hver endurgreidd eins og innistæðueigendur á Bretlandseyjum. KSFIOM var tekinn til gjaldþrotaskipta í maí s.l. eftir að kröfuhafar höfnuðu tillögu frá stjórnvöldum um hvernig bæri að endurgreiða kröfuhöfum bankans það sem þeir töpuðu á hruni hans s.l. haust. Fjármálaráðherra Manar, Allan Bell, hefur beðið þing eyjarinnar um að samþykkja greiðslur á fyrrgreindum 193 milljónum punda en fjárhæðin mun verða tekin úr varasjóði eyjarinnar. Samkvæmt frétt BBC er ekki vitað hve mikið, ef nokkuð, muni renna til KSFOM frá móðurbankanum í London.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira