Fimm stjörnu lúxus fyrir minna en 25.000 krónur 28. september 2009 14:11 Royal Penthouse svítan á President Wilson í Genf.
Kreppan hefur gert það ódýrara að búa á lúxus-hótelum. Nú er hægt að leigja sér herbergi á fimm stjörnu hótelum fyrir minna en 25.000 kr. á nóttina í 26 borgum heimsins. Þetta kemur fram á vefsíðunni Hotels.com sem birt hefur vísitölu sína yfir gistikostnað á hótelum fyrir tímabilið janúar til júní í ár. „Við reiknuðum með að árið 2009 myndi hafa í för með sér miklar verðlækkanir á hótelgistingum um allan heim. En við höfum aldrei áður séð jafnmörg topp-stjörnuhótel með jafnódýra verðlagningu," segir Nigel Pocklington forstjóri Hotels.com. Í nokkrum borgum er lúxusinn í boði á töluvert undir 25.000 kr. Þannig er hægt að fá gistingu á fimm stjörnu hótelum í Prag fyrir að meðaltali tæplega 19.000 kr. á nóttina í tvöföldu herbergi. Af öðrum Evrópuborgum þar sem lúxusinn er ódýr má nefna Berlin, Stokkhólm og Lissabon. Allra ódýrast er þó slík gisting í Bangkok og Sjanghæ þar sem herbergin eru leigt út á um 18.000 kr. að jafnaði. En það eru ekki öll lúxushótel sem hafa lækkað verð sín. Þannig hefur nóttin á Royal Penthouse svítunni í dýrasta hóteli heimsins, President Wilson í Genf, tvöfaldast í verð frá í fyrra. Það kostar litlar 8 milljónir kr. að leiga þá svítu út yfir nóttina.
Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira