Yfir hálfri milljón kreditkortanúmera var stolið 28. júlí 2009 09:43
Hafir þú átt kreditkortaviðskipti við netverslanir í Bandaríkjunum frá því 12. mars og fram til 8. júní í ár borgar sig að fylgjast vel með færslum á kortinu þínu. Í ljós hefur komið að yfir hálfri milljón kreditkortanúmera var stolið hjá Network Solutions sem hýsir kreditkortaviðskipti fyrir 4.300 netverslanir vestan hafs. Samkvæmt frétt í tímaritinu ComputerWorld mun tölvuþrjótum hafa tekist að lauma „njósna-forriti" inn á netþjóna Network Solutions en fyrirtækið er hið stærsta sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Forritið sendi síðan upplýsingar um kreditkortanúmerin ásamt nöfnum og heimilisföngum viðkomandi til netþjóna utan Network Solutions. „Við erum búin að hafa samband við lögregluna og erum að upplýsa viðskiptavini okkar um málið," segir Susan Wade hjá Network Solutions. „Í augnablikinu er ekki ástæða til að halda að kortanúmerin hafi verið misnotuð en við erum einnig í sambandi við kortafyrirtækin." Hinar stolnu upplýsingar geta verið notaðar við ýmsa efnahagsglæpi og hægt er að nota hin stolnu númer til að villa á sér heimildir.
Mest lesið Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira