Tveir draugar seldir á uppboði á Nýja Sjálandi 10. mars 2010 11:21
Tveir draugar á flöskum voru seldir á uppboði á Nýja Sjálandi fyrir um 250.000 kr. Samkvæmt frétt í Daily Telegraph voru draugarnir fangaðir í húsi Avie Woodbury í Christchurch þegar særing fór fram þar í fyrra. Hún ákvað síðan að bjóða þá upp.Draugunum var komuð fyrir í litlum glerflöskum ásamt vígðu vatni til að draga úr andlegum styrk þeirra. Avie segir að draugarnir séu annarsvegasr eldri maður sem bjó í húsi hennar árið 1920 og hinsvegar frek lítil stúlka sem birtist þegar fjölskyldan var í andaglasi.Avie segir að eftir særinguna í fyrra hafi allt verið með kyrrum kjörum í húsi hennar.Uppboðið fór fram á netinu og alls skoðuiðu 214.000 manns uppboðssíðuna áður en farið var að bjóða í draugana. Nafn þess sem keypti draugana var ekki birt. Avie segir að þegar búið verður að borga kostnaðinn við særinguna muni afgangurinn af söluverðinu renna til góðgerðarmála.Margir gerðu grín að þessu uppboði meðan á því stóð. Einn lýsti því yfir að hann væri einnig með tvo drauga á flöskum heima hjá sér. „Ég held þeir séu kallaðir Jim Beam og Johnny Walker," bloggaði hann.
Mest lesið Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira