Telja það versta yfirstaðið í gríska harmleiknum 29. apríl 2010 15:40 Kálið er samt ekki sopið þó í ausuna sé komið hjá grískum stjórnvöldum. Þau hafa lofað miklum niðurskurði á fjárlögum sínum, niðurskurði sem verkalýðsfélög landsins segjast ætla að berjast gegn með ýmsum aðgerðum.
Sérfræðingar telja nú að það versta sé yfirstaðið í gríska harmleiknum sem heimurinn hefur fylgst með undanfarna daga og vikur. Erlendir fjölmiðlar segja að samningum grískra stjórnvalda við ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn muni ljúka á allra næstu dögum og að fjárhagsaðstoðin til Grikkja muni nema yfir 100 milljörðum evra eða yfir 17.000 milljörðum kr. á næstu þremur árum. Nú síðdegis hafa þessar fréttir haft í för með sér að ávöxtunarkrafan á grískum ríkisskuldabréfum til 10 ára hefur lækkað niður í 8,9% en á tímabili fór hún upp í tæp 14%. Og krafan á bréfum til 2ja ára hefur lækkað niður í 12,8% en á tímabili fór hún í yfir 24%. Samhliða þessu hefur skuldatryggingaálagið á ríkissjóð Grikklands lækkað töluvert og er komið niður í 680 punkta samkvæmt CMA gagnaveitunni. Um tíma fór álagið vel yfir 800 punkta og komst Grikkland í vikunni á toppinn yfir þau lönd sem talin eru í mestri hættu á þjóðargjaldþroti. Kálið er samt ekki sopið þó í ausuna sé komið hjá grískum stjórnvöldum. Þau hafa lofað miklum niðurskurði á fjárlögum sínum, niðurskurði sem verkalýðsfélög landsins segjast ætla að berjast gegn með ýmsum aðgerðum.
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira