Birgir Leifur í neðsta sæti Henry Birgir Gunnarsson skrifar 4. desember 2010 18:18 Birgir Leifur átti slæman dag.
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er í vondum málum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Hann er á 7 höggum yfir pari eftir 15 holur en þá varð að hætta keppni vegna frosts í jörðu. Birgir Leifur er í neðsta sæti af þeim keppendum sem komust af stað í dag. Birgir lék fyrri níu holurnar á fimm höggum yfir pari. Hann fékk skolla á fyrstu holu en vann tapaða höggið til baka með því að fá fugl á annarri holu. Hann fékk síðan tvöfaldan skolla á 4. og 5. braut og strax kominn í vandræði. Hann fékk þess utan skolla á 6. braut. Hann paraði síðustu þrjár holurnar á fyrri níu. Það gekk einnig lítið upp á seinni níu holunum hjá Birgi því hann byrjaði á að fá tvöfaldan skolla og svo skolla. Hann var því á 8 höggum yfir pari eftir 11 holur. Hann nældi sér síðan í fugl áður en hann varð að hætta og lagaði stöðuna eilítið en það er heldur betur á brattann að sækja hjá Skagamanninum.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira