Leiknir vann í Njarðvík og fór aftur á toppinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2010 21:45 Mynd/Stefán
Leiknismenn komust aftur á topp 1. deildar karla með 1-0 útisigri í Njarðvík í kvöld. Það var Vigfús Arnar Jósepsson sem skoraði sigurmarkið og kom sínum mönnum í toppsætið. Vigfús Arnar Jósepsson skoraði markið á 15. mínútu eftir að hafa fengið flotta stoðsendingu frá Kjartani Andra Baldvinssyni. Þetta var fyrsta deildarmarkið hans í sumar. ÍR og Grótta gerðu 2-2 jafntefli í hinum leik kvöldsins. Bæði lið komust yfir í leiknum en Magnús Gíslason tryggði Gróttu jafnteflið eftir að ÍR-ingar höfðu skorað tvö mörk á sex mínútna kafla í upphafi seinni hálfleiks. ÍR-ingar gerðu þarna sitt fjórða jafntefli í fimm leikjum og hafa ekki unnið leik síðan þeir unnu Breiðholtsslaginn á móti Leikni 18. júní síðastliðinn. Leiknir er með 25 stig í 1. sætinu eða þremur meira en Þór og Víkingur sem hafa leikið einum leik færra. Víkingur R. sækir Fjarðabyggð heim á morgun og Þórsarar spila þá við Fjölni í Grafarvogi. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af netmiðlinum fótbolta.net.Úrslit og markaskorarar í 1. deild karla í kvöld: ÍR-Grótta 2-2 0-1 Enric Már Teitsson, 1-1 Karl Brynjar Björnsson, 2-1 Árni Freyr Guðnason, 2-2 Magnús Gíslason.Njarðvík-Leiknir R. 0-1 0-1 Vigfús Arnar Jósepsson (15.)
Íslenski boltinn Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira