Iceland er 13. stærsta einkafyrirtæki Bretlands 20. júní 2010 10:52
Verslunarkeðjan Iceland heldur sæti sínu sem 13. stærsta einkafyrirtæki Bretlands á nýjum Top Track 100 lista Deloitte yfir stærstu einkafyrirtæki Bretlands. Fjallað er um listann í Sunday Times og Wales Online en höfuðstöðvar Iceland eru í Flintshire í Wales. Sem kunnugt er af fréttum er Iceland að mestu í eigu íslenskra aðila. Þar af heldur skilanefnd Landsbankans á 67% hlut og Glitnir á 10% hlut. Methagnaður varð af rekstri Iceland á síðasta reikningsári keðjunnar sem lauk í lok mars s.l. Veltan jókst um 9% á árinu og nam tæpum 2,3 milljörðum punda. Hagnaðurinn jókst um 12% og nam 135,4 milljónum punda fyrir skatta eða um 25,5 milljörðum kr. Malcolm Walker forstjóri Iceland segir að þeir séu hæstánægðir með að hafa haldið stöðu sinni á Top Track listanum og að þeir séu stærsta einkafyrirtækið sem er til heimilis í Wales. Sterk staða Iceland á markaðinum hafi hjálpað því að komast í gegnum kreppuna án áfalla og gert það að verkum að vöxtur keðjunnar hélt áfram í fyrra, fimmta árið í röð.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira