Danskur hraðbanki spýtti úr sér 1.000 króna seðlum 9. desember 2010 13:32
Það varð uppi fótur og fit fyrir utan útibú Danske Bank í bænum Birkeröd í Danmörku í vikunni þegar hraðbanki fyrir utan útibúið fór skyndilega að spýta úr sér 1.000 kr. seðlum í gríð og erg. Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að þetta hafi sem betur fer uppgvötvast fljótt af vegfarendum og einum af gjaldkerum útibúsins, Bo Söfeldt Hansen. Bo stökk yfir afgreiðsluborð sitt og út að hraðbankanum þar sem honum tókst að bjarga því sem bjargað varð. Jyllands Posten segir að sem betur fer var um heiðvirða vegfarendur að ræða sem leið átti hjá og aðstoðuðu þeir Bo við að tína 1.000 kr. seðlana upp af götunni. Því tókst að safna þeim öllum saman og útibúið beið ekki skaða af. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hraðbanki á vegum Danske Bank tekur að spýta úr sér seðlum að ástæðulausu. Um er að ræða galla í tölvukerfi hraðbankanna sem veldur þessu þegar kerfið gefur bankanum ákveðnar skipanir.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira