Stuðningur Baracks Obama fælir frá 21. maí 2010 01:15 Arlen Scpecter ásamt eiginkonu sinni Náði ekki kjöri þrátt fyrir eindreginn stuðning forsetans.fréttablaðið/AP
Úrslit nokkurra forkosninga bandarísku stjórnmálaflokkanna benda til þess að mikil uppstokkun sé í vændum í þingkosningunum þar vestra næsta haust. Forkosningar voru í fjórum ríkjum Bandaríkjanna á þriðjudag, en helstu tíðindin þar voru forkosningar demókrata í Pennsylvaníu, þar sem Arlen Spector náði ekki kjöri, en hann var talinn eiga nokkuð öruggt þingsæti í öldungadeildinni eftir þrjátíu ára setu þar. Stuðningur Baracks Obama forseta við Specter hafði þar engin áhrif á kjósendur, sem þykir benda til þess að staða forsetans meðal almennings sé orðin nokkuð veik. Í Kentucky tapaði annar þungavigtarmaður í pólitíkinni, repúblikaninn Trey Greyson, fyrir nýliðanum Rand Paul sem hefur verið fyrirferðarmikill í teboðshreyfingu Söruh Palin, fyrrverandi varaforsetaframbjóðanda flokksins. Fréttaskýrendur hafa túlkað úrslitin þannig að nýliðar í flokkunum eigi almennt meiri möguleika í ár en þeir sem hafa verið áhrifamenn innan flokkanna til lengri tíma. Forkosningar halda áfram næstu vikurnar en þingkosningarnar verða haldnar 2. nóvember.- gb
Erlent Fréttir Mest lesið Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Ölvun og þjófnaðir Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Sjá meira