Golf Channel komin á Fjölvarpið 15. apríl 2010 11:00
Stöð 2 Fjölvarp hefur tryggt sér sýningarréttinn á Golf Channel frá og með deginum í dag. Golf Channel er ein virtasta golfstöð heims og hentar kylfingum á öllum aldri, hvort sem um er að ræða byrjendur eða lengra komna kylfinga. Hinn almenni kylfingur getur nýtt sér efni stöðvarinnar á margvíslegan hátt en ýmsan fróðleik má finna á stöðinni. Farið er í golfkennslu og grunnatriðin skoðuð auk lífsstílsins. Þar er fjallað ítarlega um LPGA-mótaröðina sem er mótaröð kvenna en Golf Channel skipar sér í fremstu röð í umfjöllun um kvennagolfið. Þá verða golfvellirnir skoðaðir og fylgst með golfmótunum. Þetta er aðeins brot af því sem má finna á Golf Channel. Þar eru sýndir áhugaverðir skemmtiþættir sem tengjast golfinu eins og „Being John Daly" þar sem fylgst er með John Daly sem var einn besti kylfingur heims. Þá má nefna þáttinn „The Haney project" þar sem Hank Haney, þjálfari Tigers Woods og einn virtasti golfkennari heims, fær það krefjandi verkefni að kenna gamanleikaranum Ray Romano golf frá grunni. Golf channel er að finna í stóra- og skemmtipakkanum á Stöð 2 Fjölvarp á rás 49 á Vodafone Digital Ísland. Áskrifendur eru minntir að uppfæra myndlykilinn með sjálfvirkri leit.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira