Ragnheiður skilar gögnum um kostnað 23. febrúar 2010 05:00 Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Í ágúst 2009 var ákvæði bætt við lög um fjármál stjórnmálasamtaka, sem skyldaði Ríkisendurskoðun til að birta gögn um fjárframlög og kostnað vegna stjórnmálastarfs allt aftur til ársins 2002. Frambjóðendurnir sjálfir áttu að biðja stofnunina um að birta gögnin. Fréttablaðið/pjetur
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, skilaði í gær til Ríkisendurskoðunar gögnum um kostnað sinn vegna prófkjörs fyrir alþingiskosningarnar 2007. Ragnheiði bar ekki skylda til að skila þessum gögnum, en gerði það svo ekki drægi úr trausti til setu hennar í þingnefnd sem á að bregðast við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka átti Ríkisendurskoðun að taka við gögnum af þessu tagi fyrir 15. nóvember síðastliðinn og birta þau fyrir áramót. Ríkisendurskoðun er því hætt að taka við þeim. Lárus Ögmundsson, skrifstofustjóri hjá Ríkisendurskoðun, segir að skoðað verði hvort stofnunin verður við beiðni Ragnheiðar, um að birta gögnin. Hins vegar sé Ragnheiði frjálst að birta þessi gögn upp á eigin spýtur. Stofnunin leggi hvort eð er ekkert mat á þau. Ragnheiði var í gær boðið að birta gögnin í Fréttablaðinu, en hún sagðist vilja bíða niðurstöðu Ríkisendurskoðunar. Til upprifjunar má geta þess að þrír borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins birtu gögn um prófkjörskostnað sinn í blaðinu í janúar, en þau voru í svipuðum sporum og Ragnheiður. - kóþ
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Sjá meira