Órafmögnuð og mjúk partí 10. nóvember 2010 09:00 heiðar austmann Dagskrárstjóri FM 957 býst við skemmtilegum Eldhúspartíum í nóvember.fréttblaðið/stefán „
Þetta er orðinn fastur liður og einn af okkar stærstu viðburðum á hverju ári," segir Heiðar Austmann, dagskrárstjóri FM 957. Hin árlegu Eldhúspartí hefja göngu sína á fimmtudagskvöld á skemmti- og veitingastaðnum Austur. Þar koma fram Friðrik Dór, Blaz Roca, Bjarki og félagarnir Steindi Jr. og Ásgeir. „Þetta er fyrsta kvöldið af þremur. Við ætlum að fá ýmsa flóru af listamönnum og bjóða upp á ólíkar tónlistarstefnur," segir Heiðar. Aðrir sem koma fram næstu fimmtudagskvöld eru Páll Óskar, Dikta, Haffi Haff og Jón Jónsson. Ekki er hægt að kaupa sig inn á Eldhúspartíin en hlustendur geta freistað þess að fá boðsmiða á FM 957. Eldhúspartíin hófu göngu sína um síðustu aldamót og hafa þau flakkað á milli ýmissa staða í gegnum árin. Í fyrra var viðburðurinn haldinn á Sódómu Reykjavík þar sem krafturinn var í fyrirrúmi. Núna verður aftur farið í gömlu, góðu stemninguna í líkingu við órafmagnaða tónleika MTV-stöðvarinnar. „Þetta verður berstrípaðra og meira í órafmagnaðri stemningu," segir Heiðar. „Við ætlum að reyna að fara í mjúku hliðina á þessu en samt hafa rosa gaman." Aðspurður segir hann Eldhúspartíin mjög eftirsótt hjá tónlistarmönnum, enda góður vettvangur til að kynna sig. „Það hefur aldrei verið vandamál hjá okkur að fá fólk til að spila í Eldhúspartíum. Þetta er orðinn þannig viðburður að hann er með ákveðinn stimpil á sér." - fb
Lífið Menning Mest lesið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lífið Fleiri fréttir Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Sjá meira