Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Magnús Jochum Pálsson skrifar 18. september 2026 07:02 Steindi hljóp í hálfmaraþoninu fyrir níu árum síðan og ætlar nú að reyna við Bakgarðshlaupið. Vísir/eyþór Skemmtikrafturinn Steindi Jr. ætlar loksins að hlaupa í Bakgarðshlaupinu á morgun eftir að hafa talað um það í mörg ár. Hann er spenntur fyrir kolvetnasöfnun og hefur engar áhyggjur af of litlum svefni takist honum að hlaupa fram á nótt. Það eina sem hann óttast er að glænýir hlaupaskórnir geti komið honum í koll.
Bakgarðshlaupið fer fram í Heiðmörk um helgina en þar er hlaupinn 6,7 kílómetra hringur á klukkutímafresti þangað til einn hlaupari stendur eftir. Steindi er að hlaupa bakgarðshlaup í fyrsta sinn en þetta er þó ekki hans fyrsta hlaup. Fyrir níu árum hljóp hann hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka ásamt þremur slökkviliðsmönnum. Bakgarðshlaupið verður sem fyrr í beinni útsendingu á Vísi og Vísi sjónvarpi um helgina. „Ég hljóp hálfmaraþon fyrir nokkrum árum og mér leið nokkuð vel í hlaupinu en ég gat ekki labbað í viku eftir það,“ segir Steindi. Sjá einnig: Steindi sá bara svart eftir 17 km „Ég ætlaði að vera mjög duglegur að æfa fyrir það. Svo frestaðist það alltaf því ég var svo upptekinn og það er eiginlega sama sagan núna. Ég ætlaði að vera búinn að mæla 6,7 kílómetra hring í Mosó og prófa þetta en það kom nú ekki til,“ segir Steindi. „Ég er nýkominn frá Bandaríkjunum, við vorum í tökum ég og Dóri DNA fyrir þættina Ein stjarna. Það hefði verið mjög gott að geta æft sig aðeins en ég kom heim í fyrradag þannig maður þarf að fara kaldur í þetta.“ Spenntur fyrir því að vaka fram eftir og borða pítsu „Við erum búnir að vera að tala um þetta í útvarpinu í mjög langan tíma. Strákarnir hafa enga trú á því að ég geti hlaupið þetta en ég er sannfærður um að ég geti það. Við erum búnir að vera að röfla um þetta lengi, ég ætlaði í fyrra en komst í hvorugt hlaupið. Núna var gluggi laus þannig ég ákvað að kýla á það,“ segir Steindi um aðdragandann að hlaupinu. Aðspurður hvert markmiðið sé í hlaupinu segist Steindi ekki hafa sett sér neitt markmið. Steindi í góðum félagsskap í Reykjavíkurmaraþoninu.Steinþór Hróar „Ég held það sé ekki sniðugt að vera með markmið. Þá er maður líklegri til þess að hætta um leið og maður nær því. Þannig ég ætla bara að kýla á þetta, mæta þarna í stemmingu og sjá hvað gerist,“ segir hann. Hann muni að minnsta kosti hlaupa einn hring og hver veit nema þeir verði miklu fleiri. „Ég held að Bakgarðshlaupið, ef ég skil þetta rétt, sé fyrir alla. Þú þarft ekki að vera atvinnumaður, það geta allir mætt og gert sitt,“ segir hann. „Ég veit ekki hvort ég get hlaupið einn hring eða tíu. Þannig ég er bara spenntur að kynnast öðrum hlaupurum og prófa að hlaupa með þeim bestu.“ Þrátt fyrir að hafa lítið náð að æfa sig hefur Steindi aðeins rannsakað sjálft hlaupið. Steindi í mælingu hjá Tómasi Guðbjartssyni. „Mínar niðurstöður eru að maður þurfi að borða kolvetni, oft eru nefndar pítsur, og svo snýst þetta um að vaka fram eftir. Þannig að á blaði hentar þetta mér mjög vel,“ segir Steindi. „Ég var alltaf b-manneskja þegar ég var yngri en eftir að ég eignaðist börn varð ég eiginlega a- og b-manneskja, þannig ég er vanur mjög litlum svefni. Ég hef meiri áhyggjur af hlaupinu sjálfu, að skórnir klikki, ég fái blöðrur eða misstígi mig,“ bætir hann við. „Svo er ég með brjósklos þannig það væri kannski sniðugt að hlera lækni áður en ég legg í hann, taka eitt lauflétt símtal.“ „Ég er logandi hræddur við þessi skómál“ Steindi segist í grunninn vera íþróttamaður eftir að hafa verið í fótbolta á yngri árum. Þolið ætti því ekki að vera of slæmt. „Ég verð reyndar alveg smá móður af því að borða eitt súkkulaðistykki en ég er líka mjög þrjóskur,“ segir hann. Mikilvægasti þátturinn í hlaupinu sé hugarfarið að mati Steinda. „Ég er stemmingsmaður og er byrjaður að setja saman einhverja playlista. Þetta gæti þróast eins og hérinn og skjaldbakan, þetta verður seigla og stöðugleiki,“ segir hann. Steindi lék í auglýsingum fyrir Reykjavíkurmaraþonið árið 2017. Það verður nóg að gera hjá Steinda í dag því hann þarf bæði að kaupa sér skó og hlaupaföt. Mögulega þurfi hann líka að hlaða niður forriti í símann svo hann nái að halda dampi í hlaupinu. „Ég er logandi hræddur við þessi skómál. Það eru ágætis líkur á að ég ákveði að hlaupa þetta í Crocs-skónum mínum frekar en að hlaupa í nýjum skóm. Það gæti verið leynitrix, það er rosalega mjúkur botn á þeim.“ Steindi var hvað spenntastur fyrir því að geta verið með sérlegt stemmingshorn í tjaldi milli hlaupa í Bakgarðshlaupinu en það er einn hængur á því. „Ég var svo spenntur að vera með alvöru stemmingu þar en svo er komið í ljós að ég má ekki vera með aðstoðarfólk fyrr en eftir tíu eða tólf hringi. Ég þarf eiginlega að klára þá bara svo það sé hægt að vera með stemmingu í horninu,“ segir Steindi sem setur markið hátt fyrir stemminguna.
Bakgarðshlaup Grín og gaman Hlaup FM95BLÖ Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“