Stelpurnar okkar 99 sætum ofar en strákarnir á heimslistanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2011 15:15 Margrét Lára Viðarsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir Mynd/Stefán
Íslenska kvennalandsliðið er í 16. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun og hefur aldrei verið hærra á listanum. Stelpurnar okkar fara þó aðeins upp um eitt sæti þrátt fyrir frábæran árangur liðsins í Algarve-bikarnum þar sem liðið náði öðru sætinu. Íslenska liðið deilir sextánda sætinu með Suður-Kóreu en tvö af liðunum sem Ísland vann í Algarve-bikarnum, Svíþjóð (-1 í 5.sæti) og Kína (-2 í 13. sæti) duttu niður á listanum að þessu sinni. Danir sem Ísland vann einnig hækkuðu sig um eitt sæti og upp í það þrettánda. Bandaríkin eru sem fyrr í efsta sæti styrkleikalistans en Ísland tapaði 2-4 í úrslitaleiknum á móti bandaríska liðinu. Íslenska kvennalandsliðið er nú 99 sætum ofar á heimslistanum en karlalandsliðið sem situr eins og er í 115. sætinu og hefur aðeins einu sinni verið neðar á listanum. Af mótherjum Íslands í undankeppni fyrir EM 2013 er það að frétta að Noregur er í 9. sæti og fellur um tvö sæti. Ungverjaland er í 30. sæti og fer upp um eitt sæti á meðan Belgía er í 35. sæti og stendur í stað. Þá eru Búlgarir í 48. sæti og fara upp um eitt sæti eins og Norður Írar sem sitja nú í 63. sæti styrkleikalista FIFA.
Íslenski boltinn Mest lesið Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Fótbolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Norris með aðra höndina á titlinum Formúla 1 Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Öruggur sigur City Enski boltinn Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Fótbolti Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira