Óttast að gat hafi komið á kjarnakljúfinn 25. mars 2011 08:36
Japönsk yfirvöld óttast nú að gat sé á einum kjarnakljúfinum í Fukushima Kjarnorkuverinu. Reynist þetta raunin eykst verulega hættan á alvarlegri geislamengun frá verinu sem varð illa úti í Jarðskjálftanum í Japan á dögunum og í flóðbygjunni sem kom á eftir. Hidehiko Nishiyama, talsmaður kjarnorkustofnunar Japans, sagði í morgun að vísbendingar séu um að skemmdir hafi orðið á kjarnakljúfi númer þrjú í verinu en í því eru sex kjarnaofnar. Hann segist þó vongóður um að skemmdirnar séu ekki svo alvarlegar en erfitt er að meta það þar sem enginn kemst inn í byggingarnar sem hýsa sjálfa ofnana. Skemmdirnar á ofninum, reynist þetta rétt, gætu einnig hafa orðið þegar vetni sprakk með miklum hvelli í verinu þann 14 mars síðastliðinn nokkrum dögum eftir að skjálftinn reið yfir. Tala látinna eftir jarðskjálftann í Japan og flóðbylgjuna sem kom á eftir er nú komin yfir tíu þúsund. Rúmlega sautján þúsund manns er enn saknað og tæplega þrjú þúsund manns liggja slasaðir á sjúkrahúsum landsins. Mörg hundruð þúsund manns misstu heimili sín í hamförunum og er farið að gæta matar- og vatnsskorts á sumum svæðum. Starfið heldur áfram í Fukushima kjarnorkuverinu þar sem menn berjast við að hemja geislunina frá kjarnakljúfunum. Tveir starfsmenn voru fluttir á spítala í gær eftir að hafa orðið fyrir mikilli geislun við vinnu sína.
Jarðskjálfti í Japan Mest lesið Harpa Elín Haraldsdóttir er látin Innlent Lögreglan innsiglaði Flóka Innlent Snúin staða Sönnu og sameiginlegt framboð virðist ekki í kortunum Innlent Ítrekar hótanir sínar og hvetur íbúa til að kjósa Cuomo Erlent Ölvaður en ekki barnaníðingur Innlent Líklegast að Reykjavíkurleiðin taki breytingum eftir umsagnir Innlent Tveir reyndir lögreglumenn ákærðir fyrir brot í starfi Innlent Ætlar ekki að láta „óða“ Demókrata kúga sig Erlent Dick Cheney, einn arkítekta Íraksstríðsins, er látinn Erlent Með meðvitund fastur í rústunum en lést á leið á sjúkrahús Erlent Fleiri fréttir Dick Cheney er látinn Með meðvitund fastur í rústunum en lést á leið á sjúkrahús Hyggjast banna klám sem sýnir kyrkingar Ítrekar hótanir sínar og hvetur íbúa til að kjósa Cuomo Ætlar ekki að láta „óða“ Demókrata kúga sig Ódæðin í Súdan mögulega glæpir gegn mannkyninu Handtekin fyrir að leka myndbandi af misþyrmingu á fanga Myndar stjórn með fjarhægriflokkum Miðaldaturn í Róm hrundi að hluta Áfengisneysla „Evrópumeistara í unglingadrykkju“ dregst saman Bandarískir erindrekar hótuðu evrópskum kollegum sínum Konur í Afganistan óttist raunverulega að heimurinn gleymi þeim Mamdani mælist með gott forskot degi fyrir kosningar Að minnsta kosti 20 látnir eftir stóran skjálfta í Afganistan Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Konur í Afganistan óttist raunverulega að heimurinn gleymi þeim Annar hinna handteknu látinn laus: „Drepið mig, drepið mig, drepið mig“ Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Fjórir útskrifaðir af spítala en tveir enn í lífshættu Drónaumferð við herstöð í Belgíu Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Níu í lífshættu eftir stunguárásina Margir sagðir særðir eftir árás í Cambridge-skíri Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Kona ákærð fyrir ránið í Louvre Demókratar vilja yfirheyra Andrew Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Sjá meira