Hættur að rannsaka Kaupþing Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. mars 2011 23:59 Randall stýrði Kaupþingsrannsókninni þegar Tchenguizbræður voru handteknir.
Mick Randall, yfirmaður hjá efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, SFO, sem stýrir rannsókninni á hruni Kaupþings hefur sagt upp störfum. Þetta kemur fram á fréttavef Financial Times. Einungis tvær vikur eru síðan Randall stýrði handtökum á bræðrunum Robert og Vincent Tchenguiz og fimm öðrum mönnum í Bretlandi í þágu rannsóknar málsins. Financial Times, segir að samkvæmt upplýsingum frá SFO hafi legið fyrir í allnokkurn tíma að Randall ætlaði að yfirgefa stofnunina og hverfa til starfa í einkageiranum. Hins vegar vildu talsmenn SFO ekki gefa upplýsingar um það hvort hann væri þegar kominn með starf. Financial Times segir líka að fjárframlög til SFO hafi minnkað að undanförnu og sex mikilvægir starfsmenn hafi farið til starfa í bönkum og á lögfræðiskrifstofum. Þá sé einnig óvíst um framhald á starfsemi SFO vegna þess að hugleiðingar séu um að stofnunin verði færð inn í nýja efnahagsbrotastofnun sem til standi að stofna.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira