Mourinho: Já, við erum úr leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. apríl 2011 22:03 Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, sést hér vera rekinn upp í stúku. Mynd/Nordic Photos/Getty
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, viðurkenndi það eftir 2-0 tap á heimavelli í fyrri leiknum á móti Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld að liðið ætti litla sem enga möguleika á því að komast áfram í úrslitaleikinn á Wembley. „Við náðum ekki að kalla fram annað kraftaverk með tíu menn," sagði Jose Mourinho öskureiður á blaðamannafundi eftir leikinn en lið hans virðast alltaf missa mann af velli á móti Barcelona. Að þessu sinni fékk Pepe rauða spjaldið á 61. mínútu í stöðunni 0-0. „Já við erum úr leik. Við munum fara á Camp Nou og reyna allt sem við getum til þess að ná nógu góðum úrslitum en ég sé það samt ekki gerast," sagði Mourinho en Real tapaði 5-0 á móti Barcelona ´þegar liðið mætti síðast á Camp Nou. „Við verðum án Pepe og (Sergio) Ramos sem gerðu ekki neitt af sér og það gerði ég ekki heldur. Ég vildi bara fá að vita af hverju Pepe fékk rauða spjaldið. Ég spurði bara af hverju og vildi bara að einhver myndi segja mér ástæðuna" sagði Mourinho sem var rekinn upp í stúku fyrir að mótmæla brottrekstri landa síns. „Það er hægt að óska frábæru fótboltaliði til hamingju en það hlýtur að vera erfitt fyrir eitt félag að hafa allt þetta vald. Ég ber mikla virðingu fyrir Pep Guardiola, bæði sem þjálfara og sem persónu, en ég vildi þó sjá hann vinna Meistaradeildina án svona skandals,"sagði Mourinho mjög ósáttur.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Fótbolti Íslandsmetin falla í bunkum á Íslandsmótinu í sundi Sport Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Körfubolti Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Fótbolti „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Handbolti Norris á ráspól en Verstappen í vandræðum Formúla 1 Dagskráin í dag: Stórleikur í enska og NFL á fullt Sport Sanngjarn heimasigur Enski boltinn „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Fleiri fréttir Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Inter missti niður tveggja marka forskot Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Sædís og Arna fengu silfrið en Diljá meiddist Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Albert mættur aftur til Flórens og fær nýjan þjálfara í dag Rekinn aðeins sex mánuðum eftir að hann yfirgaf Liverpool Mamma og pabbi í stúkunni þegar Emelía skoraði þrennuna í bikarnum Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Sjá meira