Sá hæfasti stýri AGS 22. maí 2011 16:31 Dominique Strauss-Kahn sagði af sér í síðustu viku. Hér sést hann í réttarsal. Mynd/AP
Fjármálaráðherrar Ástralíu og Suður-Afríku telja mikilvægt að næsti framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðins verði skipaður út frá hæfniviðmiðum en ekki þjóðerni. Frá því að sjóðurinn var stofnaður eftir síðari heimsstyrjöldina hefur Evrópumaður alltaf gegnt embætti framkvæmdastjóra. Það telja ráðherrarnir afar óeðlilegt og leggja á áherslu á að staða framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé ekki einkamál Evrópu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn byrjar á morgun að taka við tilnefningum að nýjum yfirmanni sjóðsins, eftirmanni Dominique Strauss-Kahn sem sagði af sér í síðustu viku eftir að herbergisþerna á hóteli í New York kærði hann fyrir nauðgun. Mörg Evrópuríki sækja fast að Evrópumaður taki við af Strauss-Kahn. Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, hefur verið nefnt í því samhengi en hún yrði fyrsta konan sem gegndi embættinu. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands vilja að Lagarde taki við forystu AGS.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira