Ævintýralegur ferill Steve Jobs 25. ágúst 2011 07:37
Ferill Steve Jobs fráfarandi forstjóra Apple er ævintýri líkastur en honum hefur tekist að byggja þetta fyrirtæki upp í að vera annað verðmætasta fyrirtækið á bandaríska hlutabréfamarkaðinum. Ekki er vitað hver var faðir Steve annað en að sá var frá Egyptalandi. Móðir hans hét Joanne Simpson en fljótlega eftir fæðingu hans var hann ættleiddur af þeim Clöru og Paul Jobs sem bjuggu í Sílíkon dalnum í Kaliforníu. Steve fékk snemma áhuga á tölvum og hann stofnaði Apple fyrirtækið í bílskúrnum heima hjá sér aðeins 19 ára gamall ásamt Steve Wozniak árið 1976. Fyrstu tölvur þeirra Apple I og Apple II komu svo á markað ári seinna. Wozniak yfirgaf Apple árið 1981 og Steve árið 1985. Það var svo árið 1996 að Steve tók aftur við forstjórastöðu Apple og hefur uppgangur fyrirtækisins verið með ólíkindum síðan. Steve stóð fyrir þróun og uppbyggingu á tækjum eins og iMac, iPod, iPhone og iPad sem skilað hafa fyrirtækinu methagnaði hvað eftir annað. Steve hefur glímt við erfið veikindi á undanförnum árum og þau eru ástæða þess að hann hættir sem forstjóri Apple aðeins 56 ára að aldri.
Tækni Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira