Klám flæðir yfir Facebook 15. nóvember 2011 13:15
Ný veira herjar nú á Facebook notendur um allan heim sem lýsir sér þannig að á Facebook síðum fólks birtast klámmyndir af svæsnustu sort. Vandamálið hefur verið að gera vart við sig í meira mæli undanfarna daga og nú er svo komið að notendur eru orðnir vægast sagt pirraðir. Það sem verra er, þá virkar vírusinn á þann hátt að svo virðist sem vinur þinn eða vinkona á Facebook sé að „pósta“ myndunum þrátt fyrir að vera alsaklaus af slíkri hegðun. Stjórnendur Facebook hafa í gegnum tíðina verið afar duglegir við að ritskoða þennan vinsæla samskiptavef en í þessu tilviki virðist ekkert geta stöðvað klámbylgjuna sem flæðir um vefinn. Sumir hafa gert að því skóna að tölvuþrjótahópurinn Anonymous standi á bakvið klámið, en áður höfðu verið fluttar af því fregnir að hópurinn hafi ætlað sér að eyðileggja Facebook þann fimmta nóvember síðastliðinn. Sá orðrómur rættist þó ekki og enn er allt á huldu um hver stendur á bakvið klámbylgjuna á Facebook. Eins og við var að búast hafa nokkrar Facebook síður verið stofnaðar, þar sem kláminu er mótmælt harðlega.
Tækni Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira