Obama ætlar að skera niður um 1.100 milljarða dollara 14. febrúar 2011 13:02
Barack Obama bandaríkjaforseti hefur kynnt fjárlög sín fyrir árið 2012. Í þeim boðar forsetinn að ríkisútgjöldin verði skorin niður um 1.100 milljarða dollara eða um 130.000 milljarða kr. á næstu tíu árum. Repúblikanar segja þetta ekki nægilega mikinn niðurskurð. Í frétt um málið á börsen.dk segir að fjárlagatillögur Obama fari nú til meðferðar í báðum deildum Bandaríkjaþings þar sem búist er við miklum átökum millum Demókrata og Repúblikana. Repúblikanar vilja mun meiri niðurskurð en forsetinn boðar. Bara í ár er þess vænst að fjárlagahalli Bandaríkjanna muni nema 1.500 milljörðum dollara. Meðal þess sem Obama leggur til er að frysta núverandi útgjöld ríkissjóðs og skera verulega niður í ýmsum velferðarmálaflokkum. Það sem upp á vantar á svo að koma með auknum sköttum á þá allra ríkustu í Bandaríkjunum.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira