Hvað gera nýju KR-ingarnir á móti Grindvíkingum í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2012 15:30 Mynd/Stefán
Það verður stórleikur í DHL-höllinni í kvöld þegar KR og Grindavík mætast í sextán liða úrslitum Powerade-bikarsins í körfubolta. Þarna mætast liðin sem mættust í bikarúrslitaleiknum í fyrra en KR hafði þá betur og varð bikarmeistari í fyrsta sinn í tuttugu ár. Leikurinn hefst klukkan 19.15. Grindvíkingar hafa verið á miklu skriði það sem af er vetrar, eru á toppi Iceland Express deildarinnar og unnu bæði Lengjubikarinn og Meistarakeppni KKÍ fyrir áramót. Grindavík vann 26 stiga sigur á KR þegar liðið mætti í DHL-höllina á dögunum og hefur unnið alla fjóra leiki sína í húsinu á tímabilinu. Grindavík vann einnig dramatískan 87-85 sigur á KR í Meistarakeppninni í októberbyrjun og vann síðan Þór Þorlákshöfn og Keflavík á úrslitahelgi Lengjubikarsins sem fór fram í DHL-höll þeirra KR-inga í nóvember. KR-ingar tóku liðið sitt í gegn um áramótin og tefla fram þremur nýjum erlendu leikmönnum í leiknum í kvöld. Það verður fróðlegt að sjá hvað nýju KR-ingar gera á móti toppliði Grindavíkur í kvöld og hvort sigurganga Grindavíkur heldur áfram í DHL-höllinni. Bakvörðurinn Joshua Brown var með 26 stig í fyrsta leik sínum með KR þegar liðið vann átta stiga útisigur á Haukum en Robert Lavon Ferguson var þá með 17 stig og 6 fráköst. Serbneska skyttan Dejan Sencanski spilaði ekkert í þeim leik en verður með í kvöld.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Fótbolti Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sport Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Fótbolti „FH er bara á sinni vegferð“ Íslenski boltinn Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Sjá meira