María að gera það gott - Silfur í dag, gull í gær og brons í fyrradag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2012 16:00 María Guðmundsdóttir. Mynd/Guðmundur Jakobsson
María Guðmundsdóttir, skíðakona frá Akureyri, er búin að vera í miklum ham síðustu daga en hún hefur verið að ná verðlaunasætum á hverju fismótinu á fætur öðru í Noregi. María varði í 2. sæti í stórsvigi í dag, vann svigið í gær og varð í 3. sæti í svigi á þriðjudaginn. María varð í 2. sæti í stórsvigi í dag eftir að hafa verið í þriðja sæti eftir fyrri ferðina. Keppt var í einni bröttustu og erfiðustu brekku þar í landi. 87 konur hófu keppni en aðeins 58 náðu að klára. Þess má geta að María var með fjórtándu bestu FIS-punktastöðuna af skráðum keppendum og nær svo að klára í 2. sæti. María átti einnig frábæra seinni ferð í sviginu í gær og það skilaði henni fyrsta sæti. María var önnur eftir fyrri ferðina aðeins sjö sekúndubrotum á eftir þeirri fyrstu. Í seinni ferð var svo María með langbesta tímann eða 62 sekúndubrotum á undan þeirri sem var fyrst eftir fyrri ferð og sigraði því samanlagt með 55 sekúndubrotum. María varð í 3. sæti í svigi á þriðjudaginn. Hún var fyrst eftir fyrri ferðina en náði ekki eins góðri seinni ferð og datt niður um tvö sæti. Unglingalandsliðskonan Helga María Vilhjálmsdóttir náði 12. sæti í stórsviginu í dag sem er mjög góður árangur hjá þessari ungu skíðakonu. Helga María er að undirbúa sig af kappi fyrir ÓL ungmenna í Innsbruck í lok mánaðarins.
Erlendar Innlendar Mest lesið Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Joshua kjálkabraut Paul Sport Fleiri fréttir Joshua kjálkabraut Paul KA-menn fengu góða jólagjöf Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Immobile skaut Bologna í úrslit Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Tryllti lýðinn og ærði andstæðinginn Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Jokic tók NBA-met af Abdul-Jabbar í nótt Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi „Ég finn lykt af ótta, ég sé eitthvað í augum hans“ Hætti við að keppa út af hundinum sínum KR á frábærum stað en getur ekki unnið titilinn Dallas Cowboys er enn verðmætasta íþróttalið heims Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Sjá meira
Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum