Dress Up Games malar gull - 300 milljónir í hagnað á þremur árum 11. janúar 2012 10:34
Dress Up Games ehf. hagnaðist um 88,3 milljónir króna á árinu 2010. Á árunum 2008 og 2009 nam hagnaður félagsins samtals um 213 milljónum króna. Það hefur því hagnast um rúmlega 300 milljónir króna á þriggja ára tímabili. Þetta kemur fram í síðustu ársreikningum Dress Up Games ehf. Félagið á og rekur vefsíðuna dressupgames.com og hefur á undanförnum árum verið á meðal arðbærustu fyrirtækja á Vestfjörðum. Eigandi félagsins er Inga María Guðmundsdóttir. Á vefsíðunni er tenglum á tölvuleiki þar sem dúkkulísur eru klæddar í föt safnað saman. Dress Up Games er síðan með auglýsingasamning við stórfyrirtækið Google sem tryggir því tekjur. Samningurinn virkar þannig að Google AdWords selur auglýsingar inn á síðuna og Dress Up Games ehf. fær síðan greitt fyrir hvert skipti sem einhver skoðar þá auglýsingu. Vefsíðan fær milljónir innlita, og er með tugmilljónir flettinga, í hverjum mánuði og því eru tekjurnar miklar. Eignir Dress Up Games nema 259 milljónum króna. Um 95% þeirra eru í handbæru fé. Félagið greiddi sér auk þess út 128 milljónir króna í arð á árunum 2009 og 2010.
Tækni Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira