Donald náði efsta sæti heimlistans á ný 19. mars 2012 09:45 Enski kylfingurinn Luke Donald endurheimti efsta sæti heimslistans í golfi með því að sigra á Transitions meistaramótinu á PGA mótaröðinn í gær. AP
Enski kylfingurinn Luke Donald endurheimti efsta sæti heimslistans í golfi með því að sigra á Transitions meistaramótinu á PGA mótaröðinn í gær. Úrslitin á mótinu réðust eftir fjögurra manna bráðabana. Þar léku þeir Donald, Bae Sang-moon frá Suður-Kóreu og Bandaríkjamennirnir Robert Garrigus og Jim Furyk. Norður-Írinn Rory McIlroy var í efsta sæti heimslistans og má búast við að margir geri atlögu að efsta sætinu á næstu vikum og mánuðum. Þeir léku allir samtals á 13 höggum undir pari vallar en þar á eftir voru fjórir jafnir á -12. Donald tryggði sér sigur á mótinu með því að setja niður pútt fyrir fugli á fyrstu holu í bráðabananum. Hann lék lokahringinn á 66 höggum eða 5 höggum undir pari. Þetta er í fimmta sinn sem hinn 34 ára gamli Donald sigrar á PGA móti. Ernie Els var í efsta sæti mótsins megnið af lokadeginum en hann fékk skolla á 17. og 18. braut vallarins og missti hann þar með af lestinni.
Golf Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira