Fjölnismenn unnu Njarðvík og eiga enn möguleika Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2012 20:50 Arnþór Freyr Guðmundsson.
Fjölnismenn enduðu fjögurra leikja taphrinu, fóru langt með að bjarga sér frá falli og eru enn með í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni eftir 18 stiga sigur á Njarðvík í Grafarvoginuum í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld, 92-74. Fjölnismenn gerðu út um leikinn með því að vinna fjórða leikhlutann 29-17. Calvin O'Neal skoraði 27 stig fyrir Fjölni og Nathan Walkup var með 20 stig og 11 fráköst. Miklu munaði þó um frammistöðu þeirra Jóns Sverrissonar (16 stig og 12 fráköst), Arnþórs Freys Guðmundssonar (14 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar) og Björgvins Hafþórs Ríkharðssonar (13 stig). Cameron Echols var með 24 stig og 15 fráköst hjá Njarðvík. Fjölnir komst í 8-4, 12-7 og 20-11 í upphafi leiks og var síðan með sjö stiga forskot, 24-17, eftir fyrsta leikhlutann. Fjölnir jók forskot sitt í byrjun annars leikhluta og var komið tólf stigum yfir, 37-25, þegar hann var hálfnaður. Njarðvíkingar löguðu aðeins stöðuna í framhaldinu en Fjölnir var sjö stigum yfir í hálfleik, 43-36. Njarðvík skoraði 7 af fyrstu 9 stigum seinni hálfleiks og var búið að minnka muninn í tvö stig, 45-43, eftir aðeins tvær og hálfa mínútu. Njarðvíkingar náðu samt ekki að jafna leikinn og Fjölnir hélt áfram forystunnu. Fjölnir var sex stigum yfir, 63-57, fyrir lokaleikhlutann. Fjölnismenn voru síðan sterkari aðilinn í lokaleikhlutann þar sem að þeir náðu strax fimmtán stiga forskoti, 83-68 og unnu að lokum 18 stiga sigur, 92-74.Fjölnir-Njarðvík 92-74 (24-17, 19-19, 20-21, 29-17)Fjölnir: Calvin O'Neal 27/8 fráköst, Nathan Walkup 20/11 fráköst, Jón Sverrisson 16/12 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 14/6 fráköst/6 stoðsendingar, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 13, Daði Berg Grétarsson 2.Njarðvík: Cameron Echols 24/15 fráköst, Travis Holmes 17/4 fráköst/5 stoðsendingar, Elvar Már Friðriksson 13/5 stoðsendingar, Páll Kristinsson 6/7 fráköst, Styrmir Gauti Fjeldsted 6/5 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 5, Oddur Birnir Pétursson 2, Maciej Stanislav Baginski 1.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Fótbolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sport Fleiri fréttir Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Sjá meira