Nigella Lawson grennist meðan að bankareikningur hennar fitnar 26. mars 2012 06:38
Nigella Lawson, eldhúsgyðjan með mjúku línurnar, hefur grennst svo mikið að kjólar hennar hafa farið úr stærð 18 og niður í þrýstna 12. Aftur á móti hefur bankareikningur hennar fitnað verulega. Nigella Lawson er ekki síður þekkt fyrir þrýstinn líkamsvöxt en matseld í þáttum sínum á BBC. Kílóin hafa hinsvegar hrunið af henni undanfarnar vikur mörgum aðdáendum til nokkurrar hrellingar. Hún viðurkennir fúslega að vera í megrunarkúr og segir að sú kona sem ekki viðurkenni að hafa reynt slíkt a.m.k. einu sinni á ævinni sé lygari. Aftur á móti hefur bankareikningur Lawson fitnað í takt við megrunina. Hagnaður rekstrarfélags Lawson á síðasta ári jókst um 25% og nam 1,4 milljónum punda eða um 280 milljónum króna. Fyrir utan þættina á BBC hefur Lawson tekjur af bókasölu og eldhúsáhöldum sem seld eru undir hennar merki. Lawson hefur því vel efni á að grennast. Og þótt hún hætti að elda er Lawson ekki á flæðiskeri stödd. Auður hennar og eiginmannsins, fyrrum auglýsingajöfursins Charles Saatchi, er metinn á um 22 milljarða króna.
Mest lesið „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira