Byggðastofnun selur rækjuverksmiðjuna Bakkavík 8. júní 2012 10:13
Samningar hafa tekist milli Byggðastofnunar, þrotabús Bakkavíkur hf., og Kampa hf., um kaup Kampa á rækjuverksmiðju Bakkavíkur í Bolungarvík. Í tilkynningu segir að Bakkavík hf. varð gjaldþrota vorið 2010 og hefur Byggðastofnun frá þeim tíma leitast við að koma starfsemi aftur af stað í húsnæði félagsins við höfnina í Bolungarvík, sem hýsti áður eina fullkomnustu rækjuverksmiðju í Evrópu. Kampi hf. hefur byggt upp eina öflugustu rækjuvinnslu landsins á Ísafirði. Að fyrirtækinu stendur útgerðarfélagið Birnir í Bolungarvík, auk samstarfsmanna, og er ætlunin að nýta húsnæðið undir fiskverkun, rækjuvinnslu og mjölvinnslu úr rækjuskel, svo eitthvað sé nefnt. Forsvarsmenn Kampa reikna með að starfsemi geti hafist í húsnæðinu mjög fljótlega. „Byggðastofnun lýsir ánægju með að þessar eignir séu loks komnar í hendur duglegra manna sem hafa fullan hug á að koma þar af stað fjölbreyttri starfsemi. Kampi hefur sýnt góðan rekstur eftir að hafa tekist á hendur endurreisn rækjuverksmiðju Miðfells á Ísafirði fyrir nokkrum árum og óskar Byggðastofnun þeim velfarnaðar í því uppbyggingarstarfi sem framundan er," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Viðskipti erlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira