Hreinlætisvörufyrirtæki kærir Apple Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 3. júlí 2012 22:30 Vörumerkið var upphaflega skráð árið 2000 eða níu árum áður en stýrikerfi Apple kom á markað. mynd/wikipedia
Enn á ný neyðist Apple til að standa í málaferlum í Kína. Nú hefur kínverskt fyrirtæki kært tæknirisann fyrir að hafa notað vörumerkið Snow Leopard í leyfisleysi. Lögfræðingar kínverska fyrirtækisins Jiangsu Xuebo halda því fram að Apple hafi brotið á því þegar Snow Leopard stýrikerfið kom á markað fyrir nokkrum árum. Bein þýðing á nafni fyrirtækisins á ensku er Snow Leopard eða snjóhlébarði á íslensku. Vörumerkið var upphaflega skráð árið 2000 eða níu árum áður en stýrikerfi Apple kom á markað. Jiangsu Xuebo hefur farið fram á að Apple greiði sér rúmlega 80 milljón dollara í skaðabætur eða um tíu milljarða íslenskra króna. Málið hefur vakið mikla athygli, sérstaklega fyrir þær sakir að Jiangsu Xuebo framleiðir ekki raftæki heldur klósettpappír og aðrar hreinlætisvörur. Dómstólar í Kína hafa nú þegar þingfest málið en það verður tekið fyrir á næstu mánuðum.
Mest lesið Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Hættu í megrun: „Það varð eiginlega allt vitlaust“ Atvinnulíf Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira