Rúnar: Það verður bara fimbulfamb í kvöld 26. júlí 2012 17:51 Rúnar Arnórsson ræðir málin við föður sinn á 18. teig í dag. seth „
Ég er sáttur og þetta gekk bara vel," sagði Keilismaðurinn Rúnar Arnórsson eftir að hann hafði leikið á 66 höggum á fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins í höggleik á Strandarvelli í dag. Rúnar er þegar þetta er skrifað á besta skori dagsins í karlaflokknum, fjórum höggum undir pari vallar. Rúnar fékk fimm fugla á hringnum í dag, 2., 7., 10., 12. og 15. „Ég fékk einn skolla, en annars var þetta að ganga vel upp. Ég lék vel í meistaramótinu hjá Keili og ég ætla bara að halda því áfram," bætti Rúnar við en hann var staddur úti á æfingasvæði þegar viðtalið var tekið. „Ég geri þetta oftast eftir hringina, fer yfir málin með pabba og slæ mig aðeins niður." Rúnar á að hefja leik síðdegis á föstudag á öðrum keppnisdegi og hann ætlar að drepa tímann fram að því í faðmi fjölskyldunnar í sumarbústað í nágrenni við Hellu. „Það er ekki einu sinni nettenging þarna, og ég held að það verði bara spilað fimbulfamb í kvöld," sagði Rúnar.Staðan á mótinu:
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira